Gallerí: Fellibylur, skæðar árásir og flóttamenn

Felli­byl­ur­inn Soudelor gekk yfir Tævan í morgun og nær ströndum Kína síðar í kvöld. Í Kali­forníu berj­ast allir sem vett­lingi geta valdið við gróð­ur­elda, full­orðnir jafnt sem börn. Fjöl­margir hafa misst heim­ili sín vegna eld­anna sem læsa sig í skrauf­þurran gróð­ur­inn vest­an­hafs. Þá virð­ast Tali­banar vilja halda áfram bar­áttu sinni þrátt fyrir dauða leið­toga síns. Hér er brot af því sem er að ger­ast á erlendum vett­vangi.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Felli­byl­ur­inn Soudelor fór yfir Tævan í dag og olli tölu­verðum usla. Fimm fór­ust í veð­urofs­anum og meira en 185 eru slas­aðir, sam­kvæmt stjórn­völdum í Tævan. Fimm til við­bótar er saknað en meðal þeirra sem fór­ust var átta ára gömul stúlka og móðir hennar þegar sjór gekk á land og dró þær til hafs. Bylurinn stefnur nú á stendur Kína.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Mæðgurnar Laureen Lee og Bella Lee, 10 ára, eru meðal sjálf­boða­liða sem hjálpa til við að slökkva gróð­ur­elda í Kali­forníu. Laureen og Bella hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sitt vegna eld­anna nærri Clearlake Oaks. Svæðið sem brunnið hefur er meira en 300 fer­kíló­metrar að flat­ar­máli. Nú þegar hefur gróð­ur­eld­ur­inn eyði­lagt meira en 100 bygg­ingar, þar af 43 heim­ili.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Meira en 50 manns hafa fallið í öldu árása síð­asta sól­ar­hring gegn afgönskum her, lög­reglu­liði og banda­rískum sér­sveitum í Kabúl, höf­uð­borg Afganistan. Hund­ruðir eru slas­aðir. Árás­ar­hrinan hefur dregið úr vonum um að hreyf­ing Talíbana sé veik­ari eftir dauða leið­gans Mullah Mohammad Omar. Tilkynnt var um dauða hans á dög­unum en hann er tal­inn hafa lát­ist fyrir tveimur árum.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Nú er ekki lengur tekið við fleiri flótta­mönnum í flótta­manna­búðum í Traiskirchen í Aust­ur­ríki því búð­irnar eru löngu orðnar yfir­fullar. Þær voru hann­aðar fyrir að mesta lagi 1.800 manns en nú haf­ast þar við 4.500 manns. Straumur flótta­manna til Evrópu, frá stríðs­hrjáðum löndum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og Afríku, hefur aldrei verið meiri en nú.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="708"] Börn leita að eigin frið­ar­kerti við minn­ing­ar­at­höfn í Nagasaki í Japan um kjarn­orku­sprengj­una sem féll þar 9. ágúst 1945. Það er síð­asta kjarn­orku­sprengjan sem notuð hefur verið í hern­aði. Fjöldi kerta sem tendruð voru eru í sam­ræmi við fjölda þeirra sem féllu í árásinni, eða um það bil 74.000 manns. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um aðdrag­anda og eft­ir­mála fyrstu kjarn­orku­árásanna í gær.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár