WOW air slær líka farþegamet - Frábær nýting á flugsætum og hótelherbergjum

Flug­fé­lagið WOW air flutti 104 þús­und far­þega til og frá Íslandi í júlí síð­ast­liðnum. Það er 43 pró­sent fleiri far­þegar en flugu með félag­inu í júlí 2014. Far­þega­fjöld­inn er nýtt met hjá WOW air, að því er segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Fram kemur að sæta­nýt­ingin í júlí var 90 pró­sent. Framboð, mælt í sæt­iskíló­metrum, jókst um 65 pró­sent milli júlí 2015 og júlí 2014.

„Það er magnað að í júlí fluttum við fleiri far­þega heldur en allt fyrsta árið okkar 2012. Félagið hefur vaxið gríð­ar­lega og erum við afar þakk­lát fyrir þær frá­bæru mót­tökur sem við höfum fengið frá fyrsta degi“ segir Skúli Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air, í til­kynn­ing­unni. Flug­fé­lagið flýgur í dag til 20 áfanga­staða í Evrópu og Norður-Ameríku. Félagið er með sex flug­vélar í flota sínum í sumar.


Í gær til­kynnti Icelandair Group að far­þegar í milli­landa­flugi félags­ins hafi verið 415 þús­und tals­ins í júlí síð­ast­liðnum. Sá fjöldi var sá mesti í einum mán­uði frá stofnun félags­ins, rétt eins og hjá WOW Air. Sæta­nýt­ing hjá Icelandair í júlí var 88,9 pró­sent.


Fjölgun far­þega í flug­vélum íslensku flug­fé­lag­anna tveggja er í takt við þá miklu fjölgun ferða­manna á þessu ári, sem er yfir tutt­ugu pró­sent. Hag­stofan greindi frá því í dag að gistin­óttum á hót­elum í júní fjölg­aði um 19 pró­sent sam­an­borið við júní 2014. Ekki liggja fyrir tölur um júlí­mánuð, en búast má við að hún sé svipuð eða meiri.


Nýting her­bergja á hót­elum í júní 2015 var með mesta móti, eða 84,1 pró­sent. Hún var mest á Suð­ur­nesjum, eða 90 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár