Nýtt met hjá Icelandair sem flutti 415 þúsund farþega milli landa í júlí

Farþegar í milli­landa­flugum Icelandair í júlí voru 415 þús­und tals­ins og fjölg­aði um 17 pró­sent miðað við júlí 2014. Far­þega­fjöld­inn er sá mesti í einum mán­uði frá stofnun félags­ins. Sæta­nýt­ingin var 88,9 pró­sent og jókst um 3,2 pró­sentu­stig milli ára. Hún hefur aldrei verið hærri í júlí. Fram­boðs­aukn­ing milli ára nam 14 pró­sentum.

Icelandair Group til­kynnti um þetta í til­kynn­ingu til Kaup­hallar, eftir lokun mark­aða í dag. Fram kemur að far­þegar í inn­an­lands­flugi og Græn­lands­flugi voru 33 þús­und í júlí. Framboð félags­ins á þessum flugum var dregið saman um fimm pró­sent miðað við júlí 2014. Sæta­nýt­ingin var 77,4 pró­sent og jókst um 5,1 pró­sent milli ára.

Seldum blokk­tímum í leiguflugi fjölg­aði um 21 pró­sent milli ára. Frakt­flutn­ingar juk­ust um 3 pró­sent frá því á síð­asta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hót­elum félags­ins jókst um 5 pró­sent milli ára. Her­bergj­a­nýt­ing var 90,4 pró­sent sam­an­borið við 89,1 pró­sent í júlí 2014.

Gengi bréfa Icelandair Group í Kaup­höll­inni var 26,2 krónur á hlut við lok við­skipta í dag og lækk­aði um 0,4 pró­sent í 102 millj­óna króna við­skiptum. Gengi bréf­anna hefur hækkað nokkuð að und­an­förnu en það stóð í um 21,5 krónum á hlut í byrjun maí­mán­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár