Bandarískum fyrirtækjum skylt að upplýsa um launamun milli forstjóra og starfsmanna

Banda­ríska verð­bréfa­eft­ir­litið, SEC, sam­þykkti í dag nýja reglu sem skyldar fyr­ir­tæki til þess að birta opin­ber­lega upp­lýs­ingar um launa­mun milli for­stjóra fyr­ir­tækis og dæmi­gerðs starfs­manns þess. Stjórn verð­bréfa­eft­ir­lits­ins sam­þykkti regl­una með þremur atkvæðum gegn tveimur en Mary Jo White, stjórn­ar­for­maður eft­ir­lits­ins, hefur verið undir miklum þrýst­ingi frá stétt­ar­fé­lögum og hópi Demókrata um að inn­leiða regl­una. White og tveir Demókratar í stjórn­inni sam­þykktu inn­leið­ingu regl­unnar.

Tveir full­trúar Repúblik­ana í stjórn­inni lögð­ust gegn breyt­ing­unum. Þeir telja regl­una þjóna þeim til­gangi einum að gera lítið úr for­stjórum fyr­ir­tækja og telja upp­lýs­ingar ekki gagn­ast fjár­festum að nokkru leyti. Demókrat­arnir telja aftur á móti að upp­lýs­ing­arnar gagn­ist hlut­höfum við að ákvarða laun for­stjóra. Frétta­stofa Bloomberg greinir frá í dag. Í umfjöllun Bloomberg eru þessar nýju reglur sagðar færa nýtt vopn í hendur þeirra sem berj­ast gegn auk­inni mis­skipt­ingu tekna.

Reglu­breyt­ing­arnar taka gildi í árs­byrjun 2017. Frá þeim tíma munu banda­rísk fyr­ir­tæki þurfa að upp­lýsa um með­al­laun starfs­manna að for­stjór­anum und­an­skildum, laun for­stjóra auk hlut­falls launa hans af með­al­launum starfs­fólks.

Fram kemur í umfjöllun Bloomberg að með­al­laun for­stjóra 350 stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna juk­ust um 997 pró­sent frá 1978 til 2014. Á sama tíma­bili juk­ust laun almennra starfs­manna um 10,9 pró­sent. Árið 1978 voru laun æðstu stjórn­enda fyri­tækja um 30 sinnum hærri en dæmi­gerðs starfs­manns, en voru í fyrra um 300 sinnum hærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár