SÞ: Indland verður fjölmennasta land heims fyrr en áður var talið

Indland verður lík­leg­ast fjöl­menn­asta land heims árið 2022, sam­kvæmt nýrri mann­fjölda­spá Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fyrri spár gerðu ráð fyrir að mann­fjöld­inn á Indlandi myndi taka fram úr mann­fjölda í Kína árið 2028. Löndin tvö eru þau fjöl­menn­ustu í heim­inum. Íbúa­fjöldi í Kína er í dag um 1,38 millj­arður en 1,31 millj­arður á Indlandi býr á Indlandi.

Í umfjöllun New York Times um málið segir að þótt lýð­fræð­ingar hafi lengi vitað að Indland myndi taka fram úr Kína, þá bjugg­ust þeir ekki við að það myndi ger­ast svo fljótt. Búist er við að eftir sjö ár verði 1,4 millj­arður manna í báðum lönd­unum. Þá muni Indland taka fram úr og því er spáð að íbúa­fjöld­inn verði 1,5 millj­arður árið 2030 og 1,7 millj­arður árið 2050. Búist er við að mann­fjöld­inn verði stöðugri í Kína en drag­ist lít­il­lega saman frá 2030.


Samkvæmt skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna er íbúa­fjöldi heims­ins í dag 7,3 millj­arðar. Því er spáð að mann­fólkið verði 9,7 millj­arðar tals­ins árið 2050, lít­il­lega fleiri en gert var ráð fyrir í síð­ustu mann­fjölda­spá frá 2013. Mann­fjöld­inn gæti orðið 11,2 millj­arða fyrir lok ald­ar­innar. Helm­ingur fjölg­un­ar­innar mun eiga sér stað í aðeins níu löndum, gangi spáin eftir. Þau eru Indland, Nígería, Pakistan, Kongó, Eþíópía, Tansanía, Banda­ríkín, Indónesía og Úganda. Í nokkrum ríkjum Evrópu er spáð yfir 15 pró­sent fólks­fækkun til 2050.


Fram kemur í skýrsl­unni að lífslíkur hafi auk­ist veru­lega á síð­ustu árum. Alþjóð­lega mæl­ast lífslíkur karl­manna 68 ár og lífslíkur kvenna er 73 ár. Það er þremur og fjórum árum lengur en um alda­mótin. Ísland er í hópi þeirra landa þar sem lífslíkur eru hvað lengstar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár