Ný heimildarmynd eftir Michael Moore frumsýnd í haust

Ný heim­ild­ar­mynd banda­ríska leik­stjór­ans Michael Moore verður frum­sýnd á Alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni í Toronto, TIFF, í sept­em­ber næst­kom­andi. Myndin heitir „Where to Invade Next“ eða „Næsta inn­rás“ í laus­legri þýð­ingu. Samkvæmt frétt The Guardian fjallar heim­ild­ar­myndin um það hvernig banda­rísk stjórn­völd eru sífellt í stríðs­rekstri.

Where to Invide Next verður fyrsta myndin frá Moore í sex ár en hann hefur leik­stýrt fjölda mynda. Hann fékk Ósk­arsverð­laun fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Bowling for Columbine árið 2002, gerði Fahren­heit 9/11 árið 2004 um stríð George Bush, fyrrum Banda­ríkja­for­seta, gegn hryðju­verkum, og fjall­aði um brotala­mir í banda­rísku heil­brigð­is­kerfi í mynd­inni Sicko frá árinu 2007. Fahren­heit 9/11 er tekju­hæsta heim­ild­ar­mynd allra tíma.

Moore greindi frá umfjöll­un­ar­efni nýju mynd­ar­innar í gegnum útsend­ingar-for­ritið Periscope í gær. Hægt er að horfa á sex mín­útna langa upp­tök­una hér að neðan, þar sem Moore svarar meðal ann­ars spurn­ingum sem honum bár­ust á Twitter. Moore byrj­aði á því að heilsa „vinum mínum hjá NSA [Banda­ríska þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unin] sem eru að horfa“ en Moore, sem er afar póli­tískur, hefur verið mjög gagn­rýnin á starf­semi eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar.

Að sögn Moore var myndin tekin upp í þremur heims­álfum og hafa tökur farið fram leyni­lega síð­ustu sex ár. „Það að Banda­ríkin séu í stöð­ugum stríðs­rekstri hefur valdið mér nokkrum áhyggjum um nokkra hríð og veitir nauð­syn­lega háðs­deilu fyrir þessa mynd. Það er þessi stans­lausa þörf að eiga óvin, hvar er næsti óvinur þannig að við getum haldið her­iðn­að­inum gangn­andi, og haldið fyr­ir­tækj­unum sem græða hell­ing af pen­ingum lif­andi. Þetta hefur alltaf truflað mig og þaðan kemur gam­an­myndin,“ sagði Moore. Blaða­menn The Guardian meta það svo að orða­lagið bendi til að tónn­inn í heim­ild­ar­mynd­inni verði kald­hæð­inn og gam­an­samur, eins og áður hefur sést í heim­ild­ar­myndum Moore.


Here's the 6-min video from the Periscope I just did reg­ar­ding my new film, WHERE TO INVADE NEXT. #W2IN #TIFF15 https://t.co/lKhLhTPUpn


— Michael Moore (@MMFlint) July 28, 2015

Var á Íslandi í maí

Það vakti nokkra athygli þegar Michael Moore var staddur á Íslandi í maí síð­ast­liðnum. Hann hitti meðal ann­ars Jón Gnarr og Birgittu Jóns­dóttur, þing­mann Pírata. Fátt bendir til að heim­sókn hans þá, sem sögð var í fjöl­miðlum vera í tengslum við nýja heim­ild­ar­mynd, hafi tengst heim­ild­ar­mynd­inni sem frum­sýnd verður í Toronto næsta haust.

Michael Moore er hress í Leifs­stöð. "Welcome to Iceland" sagði hann pic.twitter.com/PElYINavJ9 — Helgi Kristinn (@HelgiKris) May 8, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár