Trump á miklu skriði í skoðanakönnunum

Auð­kýf­ing­ur­inn Donald Trump leiðir enn kapp­hlaupið um útnefn­ingu Repúblik­ana sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins.

Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun CNN frétta­stöðv­ar­innar sem birt var í dag, sögð­ust 18 pró­sent aðspurðra kjós­enda Repúblik­ana styðja Trump og þá nýtur Jeb Bush stuðn­ings 15 pró­senta aðspurðra. Scott Walker, rík­is­stjóri Wisconsin, kom þriðji með tíu pró­senta stuðn­ing.

Fylgi Trumps jókst um heil sex pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun CNN, sem fram­kvæmd var í síð­asta mán­uði, á meðan fylgi keppi­nauta hans hefur hald­ist stöðugt.

Þrátt fyrir nið­ur­stöður skoð­ana­kann­anna er alls óvíst hvort Trump hlýtur útnefn­ingu Repúblika sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins, en miðað við fylgi hans í skoð­ana­könn­unum virð­ist hann njóta tölu­verðra vin­sælda á meðal flokks­systk­inna sinna. Þá vilja 52 pró­sent aðspurðra Repúblik­ana að Trump fari alla leið, og þá vilja 42 pró­sent stuðn­ings­manna ann­arra fram­bjóð­enda að Trump haldi áfram kosn­inga­bar­átt­unni.

Í skoð­ana­könnun NBC sjón­varp­stöðv­ar­innar sem fram­kvæmd var á meðal kjós­enda í New Hamps­hire, og var sömu­leiðis birt í dag, nýtur Trump stuðn­ings 21 pró­sents aðspurðra Repúblik­ana. Þar styðja enn­fremur 14 pró­sent Bush og 12 pró­sent myndu kjósa Walker.

Í sams­konar könnun NBC í Iowa leiðir Walker kosn­inga­bar­átt­una með 19 pró­sent, og Trump nýtur stuðn­ings 17 pró­senta aðspurðra kjós­enda Repúblikana­flokks­ins.

Þá sýnir enn ein skoð­ana­könn­unin hversu vel Trump stendur að vígi, en sam­kvæmt könnun YouGov nýtur banda­ríski fast­eigna­mó­gúll­inn stuðn­ings 28 pró­senta kjós­enda Repúblikana­flokks­ins á lands­vísu.

Eins og áður segir bætir Trump við fylgi sitt á milli skoð­ana­kann­anna, og það þrátt fyrir gríð­ar­lega umdeild ummæli sín um John McCain, þegar hann sagði að öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn væri ekki stríðs­hetja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár