Trump neitaði að biðjast afsökunar á ummælum sínum um ólöglega innflytjendur

Auð­kýf­ing­ur­inn Donald Trump, sem sæk­ist eftir útnefn­ingu Repúblikana­flokks­ins til emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna, heim­sótti landa­mærin að Mexíkó í dag. Þar neit­aði Trump að biðj­ast afsök­unar á nýlegum ummælum sem hann við­hafði um ólög­lega inn­flytj­endur, þegar hann full­yrti að stór hluti þeirra væru nauð­garar. Frétta­mið­ill­inn TIME fjallar um málið.

„Þeir voru ekk­ert móðg­aðir,“ sagði Trump aðspurður um hvort hann teldi ummæli sín hafa móðgað spænsku­mæl­andi hluta Banda­ríkj­anna. „Því fjöl­miðl­arnir snéru út úr orð­unum mínum.“

Trump sagði að sér hefði verið vel tekið í heim­sókn sinni til bæj­ar­ins Laredo í Texas, þar sem yfir­gnæf­andi meiri­hluti íbúa eru inn­flytj­endur, en ítrek­aði að hann myndi ekki skipta um skoðun sína varð­andi bygg­ingu landamæra­veggjar á milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó, sem hann hyggst láta síð­ar­nefndu þjóð­ina borga fyrir verði hann kjör­inn for­seti.

Hættulegur staður til að vera á

Umkringdur her líf­varða og lög­reglu­manna full­yrti Trump að það væri ekki heiglum hent að heim­sækja landa­mæri ríkj­anna. „Þeir segja að það sé hættu­legt, en ég verð að gera þetta,“ sagði auð­kýf­ing­ur­inn lit­ríki við blaða­menn um leið og hann steig frá borði Boeing 757 einka­þot­unnar. „Það stafar mikil hætta frá ólög­legum inn­flytj­endum, það stafar gríð­ar­lega mikil hætta frá ólög­legum inn­flytj­endum við landa­mærin.“

Henry Cuellar, þing­maður Demókrata frá Laredo, sagði í sam­tali við TIME að ummæli Trump stæð­ust enga skoðun. „Hann talar um ofbeldi hér, en í Laredo eru framin þrjú morð á hverja 100 þús­und íbúa (2013), en miðað við Washington D.C., þar sem hann langar að fá nýja vinnu, eru framin 16 morð á hverja 100 þús­und íbúa. Og ef þú berð glæpa­tíðn­ina í Laredo við New York borg, þar sem hann býr, þá get ég full­yrt að Laredo er mun örugg­ari staður.“

Farsælast að bjóða sig fram sem Repúblikani

Í Laredo búa 250 þús­und íbúar, en um 95 pró­sent þeirra eru spænsku­mæl­andi. Trump hafði ráð­gert að hitta for­svars­menn landamæra­eft­ir­lits­ins á flug­vell­inum í Laredo, en þeir síð­ar­nefndu hættu við fund­inn snemma í dag.

Trump var spurður út í hót­anir sínar um að bjóða sig fram sem sjálf­stæður og óháður for­seta­fram­bjóð­andi hljóti hann ekki braut­ar­gengi á lands­þingi Repúblikana­flokks­ins. „Ég er Repúblikani. Ég er íhalds­maður. Ég vil bjóða mig fram sem Repúblikani. Besta leiðin fyrir mig til að vinna er að hljóta útnefn­ingu flokks­ins.“

Auð­kýf­ing­ur­inn umdeildi hefur fengið vil­yrði fyrir því að hann fái að taka þátt í fyrstu kapp­ræðum lands­þings Repúblikana­flokks­ins eftir tvær vikur.

Hér má sjá mynd­band sem TIME tók saman um heim­sókn Trump til Laredo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár