Isavia segir Vigdísi Hauks byggja ályktanir sínar á rangfærslum

„Vigdís Hauks­dóttir alþing­is­maður og for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis deildi á Facebook síðu sinni grein af blogg­síð­unni Far­ar­heill.is og dró af henni ýmsar álykt­anir um Isavia. Margar rang­færslur eru í grein Far­ar­heilla sem virð­ist byggja á annað hvort röngum upp­lýs­ingum eða get­gátum.“

Svo segir í til­kynn­ingu frá Isavia, sem fyr­ir­tækið birti á vef­síðu sinni síð­degis. Tilefnið er Facebook færsla Vigdísar, sem hún birti í gær, þar sem hún vand­aði fyr­ir­tæk­inu ekki kveðj­urnar og deildi um leið grein sem birt­ist nafn­laus inn á vef­síð­unni Far­ar­heill.is, undir fyr­ir­sögn­inni „Enda­laust af hálf­vitum í Leifs­stöð.“

Umrædd grein hefst á orð­unum: „Fólk sem hugsar lítið eða ekk­ert er óhætt að kalla hálf­vita. Það á sann­ar­lega við um stjórn­endur Kefla­vík­ur­flug­vallar sem ættu að sjá sóma sinn í að segja störfum sínum lausum.“

Í grein­inni eru fram­kvæmdir í Leifs­stöð harð­lega gagn­rýndar og þær sagðar nær ein­ungis til þess fallnar að þjónka við versl­un­ar­eig­endur. Í sama streng tók Vigdís í áður­nefndri færslu á Facebook og í sam­tali við Kjarnann gagn­rýndi hún for­gangs­röðun stjórnar Isavia varð­andi Leifs­stöð, að háum fjár­munum hafi verið varið til að fegra versl­un­ar­svæðið, en ekki til að stækka flug­stöð­ina til að þjón­usta ferða­fólk sem best.

Nauðsynlegar breytingar


Í til­kynn­ing­unni frá Isavia er gagn­rýni á for­gangs­röðun fyr­ir­tæk­is­ins vísað á bug. „Breyt­ing­arnar sem gerðar voru á versl­unar- og veit­inga­svæð­inu í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar eru hluti af stærri fram­kvæmd. Hún fólst í því að stækka örygg­is­leit­ar­svæðið umtals­vert, bæta flæði um versl­unar- og veit­inga­svæðið og end­ur­skipu­leggja það. Þá voru samn­ingar við rekstr­ar­að­ila útrunnir og ákveðið að ráð­ast í val­ferli um rekstur versl­ana og veit­inga­staða. Í val­ferl­inu var meðal ann­ars lagt upp úr því að Isavia fengi sem mestar tekjur af versl­unar- og veit­inga­svæð­inu, enda eru þær tekjur nýttar til sjálf­bærrar upp­bygg­ingar flug­vall­ar­ins. Þessar tekur eru því for­senda þess að hægt sé að byggja upp flug­völl­inn í takt við far­þega­fjölgun.“

Þá bendir Isavia á að fyr­ir­tækið hafi reynt að bregð­ast við stór­auknu álagi sam­hliða gríð­ar­legri fjölgun ferða­manna á síð­ustu árum. Þvert á móti hafi Isavia meðal ann­ars tvö­faldað afkasta­getu far­ang­urs­flokk­un­ar­kerf­is­ins, hafið 5000 fer­metra stækkun suð­ur­hluta flug­stöðv­ar­innar, stækkað örygg­is­leit­ar­svæðið, fjölgað örygg­is­leit­ar­vélum, breytt versl­unar- og veit­inga­svæð­inu, hafið mikla stækkun komusal­ar­ins og fleira, eins og segir í til­kynn­ing­unni frá Isavia.

„Það er því alrangt að Isavia hafi ekki unnið að úrbótum eins og full­yrt er í grein­inni. [...] Isavia er boðið og búið að veita upp­lýs­ingar um starf­sem­ina og vill hvetja þá sem hyggj­ast skrifa um fyr­ir­tækið á vefi og miðla til þess að setja sig í sam­band ef þá vantar upp­lýs­ingar,“ segir þar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár