Vigdís Hauksdóttir vandar Isavia ekki kveðjurnar á Facebook

„Það er orðið súr­ríal­ískt and­rúms­loft í Leifstöð sem ISAVIA ohf ber ábyrgð á,“ skrif­aði Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis á Facebook í kvöld.

Þá skrifar þing­mað­ur­inn: „Þetta er einmitt sama flug­stöðin sem kol­féll á örygg­is­leit­ar­próf­inu - sumir eru límdir við stól­ana sína sama hvað gengur á...“

[caption id="attachment_34746" align="alignnone" width="635"] Færsla Vigdísar Hauks­dóttur á Facebook í kvöld.[/caption]

Í sam­tali við Kjarnann segir Vigdís að gagn­rýni hennar snúi ein­vörð­ungu að stjórn og stjórn­endum Isavia, en ekki almennu starfs­fólki sem sjálf­sagt reyni að vinna störf sín vel. Hún gagn­rýnir for­gangs­röðun stjórnar Isavia varð­andi Leifs­stöð, að háum fjár­munum hafi verið varið til að fegra versl­un­ar­svæðið, en ekki til að stækka flug­stöð­ina til að þjón­usta ferða­fólk sem best.

„Endalausir hálfvitar í Leifsstöð“


Neðan við færsl­una deilir þing­mað­ur­inn grein, sem birt­ist nafn­laus inn á vef­síð­unni Far­ar­heill.is, með fyr­ir­sögn­inni „Enda­lausir hálf­vitar í Leifs­stöð.“ Umrædd grein hefst á orð­unum: „Fólk sem hugsar lítið eða ekk­ert er óhætt að kalla hálf­vita. Það á sann­ar­lega við um stjórn­endur Kefla­vík­ur­flug­vallar sem ættu að sjá sóma sinn í að segja störfum sínum lausum.“

Í grein­inni eru fram­kvæmdir í Leifs­stöð harð­lega gagn­rýndar og sagðar nær ein­ungis til þess fallnar að þjónka við versl­un­ar­eig­endur. „Flugstöð er ekki versl­un­ar­mið­stöð. Ekki aðeins hafa borist fjöl­margar kvart­anir yfir löngum röðum og töfum við inn­ritun og örygg­is­leit. Líka má lesa tals­vert á sam­fé­lags­miðlum um óánægju ferða­fólks með dapra aðstöðu fyrir bið­far­þega í Leifs­stöð. Versl­anir taka nú það mikið pláss að þeir sem eru bara að bíða og hafa engan áhuga að versla verða oft að gera sér að góðu að standa upp­réttir í tíma og ótíma. Það jafn­vel í tvær til þrjár stundir því flug­völl­ur­inn hvetur fólk til að mæta með minnst þriggja stunda fyr­ir­vara á álags­tímum. Hvenær eru álags­tímar? Alltaf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár