„Ótrúlegt“ uppgjör Apple veldur verðfalli hlutabréfa

Hluta­bréfa­verð í banda­ríska tækni­fyr­ir­tæk­inu Apple hefur lækkað dug­lega í við­skiptum kaup­höll­inni í New York í dag. Verð hluta­bréfa félags­ins lækk­uðu um 5 pró­sent við upp­haf við­skipta. Verð­fallið kemur í kjöl­far árs­hluta­upp­gjörs sem kynnt var í gær af Tim Cook, for­stjóra félags­ins. Þrátt fyrir að tekjur og hagn­aður félags­ins hafi auk­ist veru­lega þá hafa fjár­festar tekið upp­gjör­inu illa.

Upp­gjörið náði yfir þriðja árs­fjórð­ung rekstr­ar­árs Apple, það eru mán­uð­irnir þrír fram til 27. júní síð­ast­lið­inn. Í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra þá jókst hagn­aður um 38 pró­sent og tekjur um 33 pró­sent. Alls nam hagn­að­ur­inn 10,7 millj­örðum doll­ara. Samtals seld­ust 47,5 millj­ónir ein­taka af iPhone snjall­símum, eða 35 pró­sent meira á sama tíma í fyrra. Sala á Mac tölvum jókst um 9 pró­sent milli tíma­bil­anna. Tim Cook, for­stjóri Apple, sagði árs­fjórð­ung­inn sem leið hafa verið „ótrú­legan“.


Því virð­ast fjár­festar ósam­mála. Ástæður fyrir dræmum við­brögðum og lækk­andi hluta­bréfa­verði eru einkum taldar tvær. í fyrsta lagi bjugg­ust grein­ing­ar­að­ilar og fjár­festar við enn meiri vexti. Í öðru lagi er nú spurt hvort Apple geti við­haldið þeim mikla vexti sem hefur ein­kennt félagið, en vöxt­ur­inn hefur á síð­ustu árum hefur verið drif­inn áfram af auknu vöru­úr­vali og nýjum upp­færslum á eldri vörum.

Símarnir helsta tekjulindin - Engar upplýsingar um úrið

Í umfjöllun BBC um upp­gjörið er greint frá áhyggjum sér­fræð­inga um að vöxtur sé of háður sölu iPhone snjall­síma og jafn­framt er því velt upp hvort sölu­vöxtur sím­ans geti haldið áfram á sama hraða og til þessa. iPhone er stærsti ein­staki tekju­póstur Apple en sala á iPad hefur dreg­ist saman að und­an­förnu og var 11 pró­sentum lægri en í fyrra. Á upp­gjörs­fundi reyndi Cook að slá á þessar áhyggjur og upp­lýsti að 73 pró­sent þeirra sem eiga iPhone 5s eða eldri gerð hafi enn ekki upp­fært og fengið sér iPhone 6 síma. Því eigi iPhone 6 „mikið inni“.


Þá eru ekki allir á eitt sáttir um þá ákvörðun Apple að upp­lýsa ekki um sölu Apple úrs­ins, nýj­ustu vöru félags­ins og þá fyrstu sem flokka má með tísku­vörum. Apple segir það mik­il­vægt svo keppi­nautar fái ekki mik­il­vægar upp­lýs­ingar. Tekjur af sölu úrs­ins eru þess í stað flokk­aðar undir „aðrar tekjur“ með auka­hlutum og Beats-heyrnatólum. Vef­mið­ill­inn Vox fjallar um þessa stefnu félags­ins og segir afar erfitt að meta hverjar við­tökur við Apple úrinu hafi raun­veru­lega verið, þar sem þau séu seld á svo stóru verð­bili, allt frá 350 doll­urum til 15 þús­und doll­ara. Blaða­menn Bloomberg áætla að um 1,9 millj­ónir úra hafi verið seld frá því þau komu á markað, en „aðrar tekjur“ juk­ust um 950 millj­ónir doll­ara á síð­asta árs­fjórð­ungi sam­an­borið við fyrsta árs­fjórð­ung rekstr­ar­árs­ins.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár