Danir streyma í bíó sem aldrei fyrr - stefnir óðum í aðsóknarmet á árinu

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins tóku dönsk kvik­mynda­hús á móti sjö millj­ónum bíó­gesta. Aukn­ingin á milli ára nemur hátt í 20 pró­sentum og ff fram heldur sem horfir verður eldra aðsókn­ar­met slegið, og það á tímum Netflix, ólög­legs nið­ur­hals og fjölda snjall­tækja þar sem bíó­þyrstir geta svalað þorsta sínum eftir kvik­myndum. Danska rík­is­út­varpið greinir frá mál­inu.

En hvað veldur? Danskir „bíó­sér­fræð­ingar“ segja að bæði hafi engin hörgull verið á stór­myndum þetta árið, og þá hafi aðsóknin í sumar farið tölu­vert fram úr vænt­ingum, enda kvarta Danir sáran undan veðr­inu þetta sum­arið, sem þykir hafa verið úr hófi fram kalt, blautt og vinda­samt.

Danski kvik­mynda­húsa­geir­inn setti fram metn­að­ar­fulla áætlun fyrir árið 2015, um að selja fimmtán millj­ónir aðgöngu­miða, og ef þró­unin verður við­var­andi er ekki loku fyrir það skotið að dönsku bíóin nái hinu háleitna mark­miði. Ef það tekst verður um að ræða stærsta „bíóár“ í Danmörku í 34 ár, en þá mun aðsóknin hafa verið á pari við aðsókn í dönsk bíó­hús fyrir komu snjall­sím­anna, spjald­tölvanna og streymi­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna á borð við HBO og Netflix.

Fjárfestingar sem hafa skilað sér


„Kvik­mynda­húsin standa sterkum fótum um þessar mundir,“ segir John Tønnes, for­stjóri Nordisk Film, sem rekur kvik­mynda­hús víða í Danmörku. Hann segir að ný end­ur­bætt kvik­mynda­hús, með hátöl­urum frá gólfi og upp í loft, betri staf­rænum mynd­gæðum og þá oft í þrí­vídd, betri sætum og öðrum auka­bún­aði sé á meðal þess sem skýri núver­andi vel­gengni kvik­mynda­hús­anna. „Þá er upp­lifunin auð­vitað öðru­vísi að horfa á kvik­mynd í góðu bíói en heima í sóf­anum. Það sama má segja um fót­bolt­ann, það er meiri stemmn­ing að mæta á völl­inn en að horfa á liðið sitt í sjón­varp­inu heima í stof­unni.“

Hann segir að nú sé sam­keppnin hvað hörð­ust í bar­átt­unni um frí­tíma fólks. „Fyrir nokkrum árum sat ungt fólk bara heima hjá sér og hafði ofan fyrir sér þar, sem var ekki mjög félags­leg reynsla. Í dag getur fjórtán ára sonur minn spilað við hátt í 15 aðra krakka á sama tíma í gegnum netið. Þetta er það sem við erum að keppa við,“ segir segir John Tønnes, for­stjóri Nordisk Film.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár