Leiðtogar framtíðarinnar alast upp í sama hverfi í Stokkhólmi

Margir hafa þá mynd af Svíþjóð að hún sé stétt­laust land. Hér er ekki bara áhersla á jöfnuð heldur hefur jan­telagen, eins og það er kallað í Svíþjóð, haft mikil áhrif. Grunn­hug­myndin var að allir hefðu sömu tæki­færi en um leið voru þeir litnir horn­auga sem gerðu mikið úr sjálfum sér eða gort­uðu af eigin afrekum. Engu að síður er mjög áhrifa­mikil yfir­stétt í land­inu sem hefur meiri auð milli hand­anna en flestir geta ímyndað sér.

Þótt rík­ustu Svíarnir dreif­ist vissu­lega um landið má segja að rjóm­inn af yfir­stétt­inni hafi nán­ast tekið yfir heilt hverfi í útjaðri Stokk­hólms. Á Djurs­holm búa um níu þús­und manns og þar eru teknar ákvarð­anir sem ráða miklu um örlög þjóð­ar­innar.

Rannsakaði Djursholm í mörg ár


Nýlega kom út löng og mikil bók sem fjallar um hverfið og íbúa þess. Höf­und­ur­inn er Mikael Holmqvist, pró­fessor í við­skipta­fræði og leið­toga­fræðum við Stokk­hólms­há­skóla. Hann nýtir sér ekki bara töl­fræði og opin­berar upp­lýs­ingar um hverfið heldur hefur hann fylgst með því í mörg ár auk þess sem hann tók við­töl við um tvö hund­ruð íbúa þess. Mikael segir að þarna búi fólk sem telji sig ein­fald­lega hafa meiri og betri kosti en annað fólk, hvort sem er út frá fag­ur­fræði­legum eða sið­ferð­is­legum for­sendum. En þetta er líka byggð sem þrífst á eins­leitni og nauð­syn þess að allt sé slétt og fellt á yfir­borð­inu.

Á Djurs­holm eru allir glaðir, sól­brúnir og í góðu formi. Hverf­is­búðin selur minna af gosi og snakki en í öðrum hverfum en neysla á bæði Pensi­líni og Viagra er meiri því hér má eng­inn vera veikur og allir eru til í tuskið. Vandamál eru aldrei rædd opin­ber­lega heldur fara þau öll í gegnum lög­fræð­inga. Kvart­anir til lög­reglu eru fjöl­margar og kærur fljúga á milli granna um leið og þeir brosa hver til ann­ars yfir grind­verkið. Íbúarnir ganga mjög langt í við­leitni sinni til að vernda eins­leitn­ina og þótti heim­ili fyrir fjóra fatl­aða ein­stak­linga til dæmis vera ógn við hverfið.

Þjónustufólk á hverju strái


Hluti af lífstíl þeirra sem búa á Djurs­holm felst í því að hafa þjón­ustu­fólk til að sinna flestum störfum heim­il­is­ins. Garð­yrkju­menn og heim­il­is­hjálp sjá til þess að allt sé slétt og fellt á yfir­borð­inu, þótt reyndar sé þjón­ustan nið­ur­greidd af skatt­borg­urum vegna reglna um skatta­frá­drátt. Hug­myndin um þjón­ustu­fólk nær þó mun lengra. Starfs­menn í búðum, á bóka­söfnum og jafn­vel stjórn­mála­menn eru ekk­ert annað en þjón­ustu­fólk í augum íbú­anna.

Þegar stjórn­mála­maður tekur ákvörðun sem fellur ekki í kramið fær hann sím­töl og bréf frá lög­fræð­ingum. Oftar en ekki er þá brugðið til þess ráðs að skella skuld­inni á opin­beran starfs­mann sem á erfitt með að verja sig. Að sjálf­sögðu eru svo ráðnar barn­fóstrur inn á heim­ilin og skiptir þá litlu máli þótt móð­irin sé heima­vinn­andi. Hér er það gam­al­dags við­horf sem ræður. Karlinn vinnur úti og óhugs­andi er að hann sé heima­vinn­andi. Á Djurs­holm er heldur eng­inn opin­ber­lega sam­kyn­hneigður í hverfi þar sem Kristi­legir Demókratar geta treyst á meira fylgi en víð­ast ann­ars staðar. Hér gildir að eiga börn og þau eru mis­kunn­ar­laust notuð sem skipti­mynt í valda­tafli.

Hærra hlutfall lesblindra en víðast annars staðar


Þegar barn úr „merki­leg­ustu“ fjöl­skyld­unum hefur skóla­göngu fær skóla­stjór­inn tugi sím­tala og bréfa þar sem for­eldrar krefj­ast þess að sitt barn gangi í sama bekk. Nýjasta dæmið um þetta er Estelle prinsessa, dóttir Viktoríu krón­prinsessu, sem nýlega hóf skóla­göngu í hverf­inu. Á Djurs­holm vita menn að vin­skapur við verð­andi drottn­ingu getur skipt höf­uð­máli í fram­tíð­inni. Börnin skulu þess vegna leggja sitt af mörkum til að stækka net­verkið með því að kynn­ast rétta fólk­inu. Til þess að það tak­ist dugir ekk­ert annað en afburða árangur í skóla. Þau börn sem grein­ast með ein­hverja röskun geta átt von á því að reiðir for­eldrar berj­ist fyrir því að þau séu flutt í aðra bekki eða skóla.

[caption id="attachment_34387" align="alignnone" width="774"] Estelle prinsessa ásamt móður sinni, Viktoríu krón­prinsessu. Mynd: EPA[/caption]

Eftir grunn­skóla skulu Djurs­holms-börnin ganga í Viktor Rydbergs mennta­skól­ann. Skólinn er með hæstu með­al­ein­kunn í land­inu þrátt fyrir að nem­end­urnir mælist rétt um með­al­lag í lands­prófum. Há með­al­ein­kunn er nefni­lega það eina sem gildir til að kom­ast inn í Við­skipta­há­skól­ann í Stokk­hólmi og þess vegna líta for­eldr­arnir á háar ein­kunnir sem sjálf­sagðan rétt barn­anna. Ef þær lækka eru kenn­ar­arnir kall­aðir á teppið og þeir krafðir svara um það hvers vegna þeir standi sig ekki gagn­vart börn­unum.

Nemendur sem ekki ná til­settri ein­kunn eru sumir hverjir sendir í Lunds­berg heima­vist­ar­skól­ann sem var lokað tíma­bundið árið 2013 eftir gróft ein­elti og ofbeldi sem tengd­ist inn­vígslu nýrra nem­enda. Önnur lausn er að fá les­blindu­grein­ingu en hlut­fall les­blindra á Djurs­holm er mark­tækt hærra en ann­ars staðar. Kost­ur­inn við slíka grein­ingu er að þá taka nem­end­urnir munn­leg próf. Frá unga aldri eru þau vanin við að halda fyr­ir­lestra og í raun má segja að það skipti þau minna máli að þekkja til­tekið efni nákvæm­lega en að geta skilað því frá sér á réttan hátt. Allt snýst um fram­setn­ingu og leið­toga­hæfni.

Þótt börnin hafi aðgang að öllum hugs­an­legum lífs­gæðum og verði lík­lega leið­togar fram­tíð­ar­innar í Svíþjóð skortir þau þekk­ingu á líf­inu utan hverf­is­ins. Þess vegna sér skól­inn um að kynna þau fyrir hlutum eins og að fara í strætó eða neð­an­jarð­ar­lest. Mörg barn­anna tala líka um að þau fái litla athygli frá for­eldrum sem séu upp­tekin við vinnu og ferða­lög. Faðmlög og vænt­um­þykja koma því frekar frá barn­fóstrum og þjón­ustu­fólki.

Fáir frumkvöðlar í hverfinu


Þeir sem hafa áhuga á að kom­ast inn í sam­fé­lagið á Djurs­holm þurfa að vera mold­ríkir. Algengt verð á fast­eign er um hálfur millj­arður íslenskra króna en dýr­ustu húsin kosta rúman millj­arð. Reyndar eru mörg heim­ili skuld­sett upp í topp og því lifir fólk stans­laust á brún­inni. Pressan að standa sig hefur gríð­ar­leg áhrif og mis­tök eru ekki leyfð. Hugs­an­lega er það þess vegna sem fólk á Djurs­holm forð­ast frum­kvöðla­starf eða nýsköpun.

Í stað þess að veðja á eitt­hvað nýtt gengur fólk inn í rót­gróin fyr­ir­tæki sem oft eru í eigu for­eldra eða fjöl­skyldu. Menn­ing­ar­lífið á alltaf sína full­trúa á Djurs­holm enda þykir það fínt. Annars búa þarna for­stjórar fyr­ir­tækja, fjár­mála­jöfrar og svo auð­vitað full­trúar ríku ætt­anna eins og Wallenberg fjöl­skyld­unnar.

Líkurnar á því að þeir sem alast upp á Djurs­holm verði leið­togar eru miklar. Hér er rjóm­inn af elít­unni, valda­sam­fé­lag sem á engan sinn líkan í Svíþjóð. Hins vegar hljóta að vakna spurn­ingar um það hversu gott það er fyrir sam­fé­lag ef því er stjórnað af litlum hópi sem elst upp í sama hverfi með mjög ákveðið gild­is­mat. Sér­stak­lega þegar hóp­ur­inn telur sig betri en aðra og lítur niður á þá sem ekki búa við sömu lífs­gæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár