Jeb Bush og Hillary Clinton með mest fé til að spila úr - Þessu hafa framboðin safnað

Jeb Bush, fram­bjóð­andi í for­vali Repúblikana­flokks­ins til for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum 2016, hefur safnað mestu kosn­ingafé af öllum for­seta­fram­bjóð­endum, alls um 114,4 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 15,4 millj­arða króna. Sá fram­bjóð­andi sem hefur safnað næst mestu er Hillary Rodman Clinton, sterkasti fram­bjóð­and­inn í for­vali Demókrata. Framboð hennar hefur safnað um 63 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 8,5 millj­arða króna.

Frestur flestra fram­boða til að skila gögnum um fjár­hags­mál rann út í gær, mið­viku­dag, en sér­stök nefnd á vegum rík­is­ins heldur utan um hversu mikla fjár­muna er aflað og hversu miklu er eytt. Nefndin mun allt fram að kosn­ingum kalla reglu­lega eftir gögnum um fjár­mál fram­boð­anna. NY Times er meðal þeirra fjöl­miðla sem fjalla um málið í dag með mynd­rænni fram­setn­ingu. Listinn hér að neðan er unn­inn úr umfjöllun banda­ríska blaðs­ins. Í þriðja dálki hafa upp­hæðir verið færðar í íslenskar krónur.

Fram­bjóð­andi Hefur safnað (í millj­ónum doll­ara) Hefur safnað (í millj­ónum króna)
Jeb Bush (R) 114,4 15.444
Hillary Clinton (D) 63,1 8.519
Ted Cruz (R) 52,3 7.061
Marco Rubio (R) 40,7 5.495
Rick Perry (R) 17,9 2.417
Bernie Sanders (D) 15,2 2.052
John Kasich (R) 11,5 1.553
Ben Carson (R) 10,6 1.431
Mike Huckabee (R) 8 1.080
Rand Paul (R) 6,9 932

Jeb Bush, bróðir George Bush yngri, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna, hefur fyrst og fremst safnað pen­ingum í gegnum utan­að­kom­andi hópa, svo­kall­aða PAC-hópa sem eru ekki á vegum Bush en styðja hann með miklum fjár­munum frá fyr­ir­tækjum, þrýsti­hópum og sterk­efn­uðum ein­stak­lingum. Alls hefur Jeb Bush fengið 103 millj­ónir doll­ara frá slíkum hópum. Aðrir fram­bjóð­endur sem hafa fengið stærstan hluta með sama hætti eru Repúblik­arnir Ted Cruz, Marco Rubio og Rick Perry. Þeir hafa safnað 38 millj­ónum, 31,9 millj­ónum og 16,8 millj­ónum doll­ara með þessum hætti.

Hillary Clinton hefur fengið um 15,6 milj­ónir doll­ara frá PAC-hópum. Ef litið er til hversu mikið fram­boðin sjálf hafa safnað þá trónir Clinton efst, sam­tals hafa 47,5 millj­ónir doll­ara runnið beint til fram­boðs­ins. Á eftir henni kemur Bernie Sanders, sem einnig er í fram­boði fyrir Demókrata og hefur sótt á í skoð­ana­könn­unum und­an­farnar vikur. Sanders er á vinstri væng banda­rískra stjórn­mála og hefur meðal ann­ars talað gegn miklum áhrifum fjár­magns í stjórn­mála­bar­átt­unni í land­inu. Ríflega 80 pró­sent af þeim tveimur millj­örðum króna sem fram­boð hans hefur safnað, hafa komið frá ein­stak­lingum sem gefa 200 doll­ara eða minna. Tvö hund­ruð doll­arar eru rúm­lega 25 þús­und krónur.

Þá birtir NY Times einnig yfir­lit yfir hversu miklu fram­bjóð­end­urnir hafa eytt í bar­átt­unni til þessa, en yfir­litið nær til 30. júní 2015. Auð­kýf­ing­ur­inn umdeildi Donald Trump hefur eytt um 75 pró­sent af þeim 1,4 millj­ónum doll­ara sem kosn­inga­skrif­stofa hans hefur haft til umráða fram til þessa. Repúblikan­inn Ben Carson hefur eytt 5,9 millj­ónum doll­ara, eða um 64 pró­sent af kosn­ingafé, og Rick Santorum hefur eytt um 400 þús­und doll­urum. Það jafn­gildir um 62 pró­sentum af kosn­inga­sjóði hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár