Donald Trump birti mynd af sér og nasistum - Og leiddi síðan skoðanakönnun

Banda­ríski auð­kýf­ing­ur­inn og nú for­seta­fram­bjóð­and­inn Donald Trump er vin­sælasta for­seta­efni meðal Repúblik­ana, sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum banda­rískra fjöl­miðla síð­ustu daga. Óvægin, umdeild og yfir­lýs­ing­arglöð kosn­inga­bar­átta Trumps virð­ist falla vel í kramið hjá mörgum Banda­ríkja­mönnum. Í gær birti USA Today könnun sem sýnir 17 pró­sent stuðn­ing við Trump meðal for­seta­efna Repúblikana­flokks­ins, um þremur pró­sentu­stigum meira en hjá næsta fram­bjóð­enda, Jeb Bush.

Um klukku­stund áður en nið­ur­stöður könn­unar USA Today lágu fyrir í gær, þá birt­ist sam­sett mynd á Twitter-síðu Trumps þar sem and­lit hans, Hvíta húsið, pen­inga­seðlar og her­menn hafa verið skeyttir ofan á banda­ríska fán­ann. Ef rýnt er í mynd­ina má sjá kenni­merki SS-sveita nas­ista á hand­legg her­mann­anna. Svo virð­ist sem myndin sé af her­mönnum nas­ista.

[caption id="attachment_34108" align="aligncenter" width="620"] Skjáskot The Guardian af tísti Donald Trump.[/caption]

The Guardian greinir frá í dag en mynd­inni var fljót­lega eytt af Twitter-síðu Trumps og skuld­inni skellt á starfs­nema á kosn­inga­skrif­stof­unni. Blaða­maður The Guardian metur það lík­leg­ast að starfs­fólk Trumps hafi sótt ókeypis mynd úr mynda­banka og ekki séð að hún er af leik­urum í gervi nas­ista.

Ræður Trump hafa oft ratað í fjöl­miðla síðan hann til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta­efnis Repúblik­ana um miðjan síð­asta mánuð. Stefna hans þykir óvægin og harð­neskju­full. Vin­sældir í skoð­ana­könn­unum koma í kjöl­far afar umdeild­ara ummæla hans um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum. „Þegar Mexíkó sendir fólkið sitt, þá er það ekki besta fólkið þeirra. Þau senda fólk sem glíma við mörg vanda­mál og þau taka þessi vanda­mál með sér. Þau taka með sér fíkni­efni og glæpi. Þetta eru nauð­garar,“ sagði Trump í einni umdeild­ustu ræðu sinni þar sem hann fjall­aði um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum frá Mexíkó.

Mörgum þykir afstaða Trump afar for­dóma­full og fáfróð. Vegna ummæla sinna hefur hann misst sjón­varps­samn­ing og fjöl­mörg fyr­ir­tæki hafa rift samn­ingum við hann. Engu að síður hafa vin­sæld­irnar haldið áfram að aukast í skoð­ana­könn­unum. Það bendir til að hluti banda­rískra kjós­enda tekur undir afstöðu Trumps í inn­flytj­enda­málum, sem hafa verið fyr­ir­ferða­mest í kosn­inga­bar­áttu Trumps til þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár