Stundvísi Icelandair og WOW air versnar - Örtröð í Leifsstöð

Stund­vísi flug­fé­lag­anna Icelandair og WOW air versn­aði í júní sam­an­borið við maí, sam­kvæmt athugun Dohop flug­ferða-leit­ar­vél­ar­innar. Dohop hefur und­an­farna mán­uði tekið saman tölur um stund­vísi þeirra flug­fé­laga sem fljúga mest frá Keflavík. Í júní var easyJet stund­vís­ast við brott­farir en Air­Berlin var stund­vís­ast við komur. Brott­förum og komum flug­véla WOW air seink­aði í nærri 40 pró­sent til­vika, að með­al­tali um 32 mín­útur í hvert skipti.

Flug­fé­lag Hlutfall brott­fara á réttum tíma Meðaltöf í mín­útum Hlutfall komu á réttum tíma Meðaltöf í mín­útum
Icelandair 73% (89%) 12,09 (7,98) 82% (88%) 6,72 (9,44)
WOW air 62% (81%) 31,76 (9,65) 62% (74%) 31,73 (15,179)
easyJet 74% (74%) 8,29 (16,24) 88% (85%) 3,67 (11,56)
Air­Berlin 68% 11,38 94% 2,26

 

Þegar töl­urnar í júní eru bornar saman við stund­vísi flug­fé­lag­anna í maí sést að hún versnar tölu­vert hjá bæði Icelandair og WOW air. Í töfl­unni hér að ofan eru tölur fyrir maí í sviga en nýj­ustu töl­urnar, fyrir júní, standa utan sviga. Hlutfall brott­fara á réttum tíma hjá Icelandair dróst saman úr 89 pró­sentum í 73 pró­sent. Meðaltöf í mín­útum jókst úr tæpum átta mín­útum í rúm­lega tólf mín­útur. Hlutfall komu­tíma versn­aði einnig milli mán­aða hjá Icelandair.


Meðaltöf hjá WOW air jókst mikið bæði við brott­farir og komur. Töfin var nærri 32 mín­útur í hverju flugi WOW air í júní. Hlutfall brott­fara og komu á réttum tíma í júní var 62 pró­sent í júní og lækk­aði frá því að vera 81 pró­sent og 74 pró­sent í maí. Í til­kynn­ingu frá DoHop segir að stórt hlut­fall seink­ana flug­fé­lags­ins hafi verið í fyrstu vik­unni í júní, þegar vél­ar­bilun og þrumu­veður olli miklum töfum.


Stund­vísi easyJet breytt­ist minna milli mán­aða en hjá íslensku flug­fé­lög­unum. Meðaltöf í mín­útum lækk­aði við brott­för og var um 8,3 mín­útur í júní. Meðaltöf við komu var tæpar fjórar mín­útur í júní.


Air­Berlin mælist í fyrsta sinn í athugun DoHop en flug­fé­lagið fór yfir 50 áætl­un­ar­flug til og frá Keflavík í mán­uð­inum. Meðaltöf á flug­ferðum félags­ins var aðeins 2,3 mín­útur við komu en 11,4 mín­útur við brott­för.

Örtröð í flugstöðinni

Ýmsar ástæður geta legið fyrir töfum á milli­landa­flug­ferðum flug­fé­lag­anna. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur það meðal ann­ars áhrif á stund­vísi íslensku flug­fé­lag­anna að bæði fara þau flestar ferðir allra flug­fé­laga um Kefla­vík­ur­flug­völl­inn og flestar ferð­anna eru á mestu álags­tímum sól­ar­hrings­ins. EasyJet, og fleiri af þeim erlendu flug­fé­lögum nýlega hafa vanið komu sína til Kefla­vík­ur­fug­vallar, hafa fengið úthlut­aða tíma sem margir eru utan álags­tíma.


Gríð­ar­legt álag á Kefla­vík­ur­flug­velli hefur verið nokkuð til umfjöll­unar í sumar. Nærri 30 pró­sent fjölgun ferða­manna það sem af er ári, sam­an­borið við fyrstu sex mán­uði síð­asta árs, hefur aukið álag á flug­vell­inum mikið. Álags­tímar eru á morgn­ana og einkum á fimmtu­dögum og sunnu­dögum en að með­al­tali fara um 22 þús­und manns um flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar á sunnu­dögum í júlí. Það hefur komið fyrir á síð­ustu vikum að örtröð mynd­ast við leit­ar­hliðið og flug­ferðum hefur verið seinkað vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár