22 þúsund manns fara í gegnum Leifsstöð á sunnudögum

Álagið er mikið á starfs­fólki flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar, sér­stak­lega á sunnu­dögum þegar að með­al­tali 22.000 manns fara í gegnum húsið. Guðni Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, seg­ist þegar merkja um 20 pró­sent fjölgun ferða­manna milli ára í júlí. Ferða­fólki á leið í gegnum Leifs­stöð hefur fjölgað um 29 pró­sent frá ára­mótum, miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Aukning ferða­manna í júní sé miðað við júní í fyrra var 25 pró­sent. Ferða­mála­stofa birti tölur yfir aukn­ing­una í byrjun júlí. Ferða­mönnum hefur fjölgað alla mán­uði árs­ins miðað við árið áður um 20 til 36 pró­sent, eða að jafn­aði um 29 pró­sent. Bara í júní fóru 137.000 ferða­menn um flug­stöð­ina. Guðni segir einnig mikla aukn­ingu í júlí og telur hana vera um 20 pró­sent.

Til þess að mæta þessum aukna straumi ferða­manna í gegnum flug­stöð­ina hér á Íslandi hefur Isavia ráð­ist umfangs­miklar end­ur­bætur og stækk­anir í Leifs­stöð. Nú er búið að reisa heila nýja álmu sem er um 5.000 fer­metrar að flat­ar­máli. Hún er að sögn Guðna til­búin að utan en tal­verð vinna á eftir að fara fram við inn­rétt­ingar.

Áætluð verk­lok eru í maí 2016 eins og lagt var upp með. Flug­stöðin var fyrir um 56.000 fer­metrar svo verið er að stækka hana um tæp­lega tíu pró­sent. Fram­kvæmdin kostar um það bil 2,6 millj­arða íslenskra króna. Stækk­unin er yst í flug­stöð­inni eða á svæð­inu sem þjónar far­þegum á leið til eða fra löndum utan Schengen.

Þá er einnig unnið að stækkun komusal­ar­ins um 700 fer­metra. Þar á að fjölga far­ang­urs­beltum og gera aðstöðu fyrir aftan toll­hliðin betri fyrir aðstand­endur ferða­langa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár