Grikkjum gert að afsala sér fjárhagslegu fullveldi sínu

Grikkir þurfa nán­ast að afsala sér fjár­hags­legu full­veldi sínu, og ráð­ast í umfangs­miklar nið­ur­skurð­ar­að­gerðir og einka­væð­ingu, ætli þeir að forða sér frá gjald­þroti og hanga inni í evru­sam­starf­inu. Þetta kem­ur meðal ann­ars fram í til­lögu að sam­komu­lagi um skulda­vanda Grikk­lands sem sett var sam­an á fundi fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna í dag. The Guardian fjallar um málið. Ná­ist sam­komu­lag þurfa Grikk­ir lík­lega á bil­inu 82-86 millj­arða evra sam­kvæmt til­lögu ráð­herr­anna.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, og Francoise Holland, Frakk­lands­for­seti, kynntu Alexis Tsipras, for­seta Grikk­lands, skil­yrðin fyrir tug­millj­arða evra neyð­ar­láni til handa Grikkjum, á fundi í Brussel í dag. Merkel og Hollande gengu hart fram gegn Tsipras í dag um að hann ábyrgð­ist að staðið verði við sam­komu­lagið ef af því verður.

Ef Grikkir ganga ekki að skil­yrð­unum fyrir neyð­ar­lán­inu, mun þjóðin ganga tíma­bundið út úr evru­sam­starf­inu á meðan gríska ríkið vinnur að end­ur­skipu­lagn­ingu skulda þjóð­ar­bús­ins. Gangi þjóðin af skil­yrðum evru­ríkj­anna, verða Grikkir að fram­selja yfir­ráð sín yfir rík­is­eignum að and­virði 50 millj­arða evra sem trygg­ingu fyrir neyð­ar­lán­inu og að ráð­ist verði í einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja. Hvorug leiðin naut sam­hljóma stuðn­ings leið­toga evru­svæð­is­ins.

Skil­yrðin fyrir neyð­ar­lán­inu eru mun strang­ari en kröfu­hafar Grikk­lands hafa áður farið fram á á síð­ast­liðnum fimm árum. Samkvæmt heim­ildum Guardian má rekja hina auknu hörku til þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar sem grísk stjórn­völd efndu til með litlum fyr­ir­vara á dög­unum, sem hleypti illu blóði í við­semj­end­urna.

„Honum var sagt að hann myndi fá betri samn­ing ef já kæmi upp úr köss­unum, og að nei myndi þyngja samn­inga­gerð­ina veru­lega,“ segir heim­ilda­maður The Guardian.

Rík­is­sjóður Grikk­lands skuldar 320 millj­arða evra, eða 177 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu lands­ins, þrátt fyrir að hafa þegar fengið um 240 millj­arða evra í neyð­ar­lán á und­an­förnum árum. Þjóð­ar­fram­leiðsla Grikk­lands hefur fallið um 25 pró­sent frá árinu 2010, og atvinnu­leysi í land­inu mælist nú 26 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár