Nokkur dæmi um hvernig John Oliver er að hafa áhrif á bandarískt samfélag

Sjón­varps­þáttur breska grínist­ans og sam­fé­lags­rýn­is­ins John Oliver á sjón­varps­stöð­inni HBO virð­ist vera að hafa bein áhrif á banda­rískt sam­fé­lag. Þá eru nokkrar vís­bend­ingar um hvernig hár­beitt gagn­rýni Oliver hefur haft bein áhrif á lög­gjafann, og komið úrbótum til leiða.

Það er í sjálfu sér ekk­ert nýtt að grínistar geri óspart grín að ríkj­andi menn­ingu og stjórn­völdum, en það er ekki á hverjum degi að ádeila þeirra ratar inn á vef­síður rík­is­stofn­anna eða hafi bein áhrif á ráða­menn til að ráð­ast í laga­breyt­ingar.

Þáttur John Oliver, Last Week Tonight, hefur á skömmum tíma skipað sér slíkan sess. Þrátt fyrir að fyrrum kollegar hans, þeir Stephen Colbert og Jon Stewart, hafi til langs tíma gagn­rýnt frétta­flutn­ing í Banda­ríkj­unum og bent á fárán­leika hvers­dags­leik­ans, stendur þáttur Olivers þeim framar fyrir rann­sóknar- og grein­ing­ar­vinnu þegar eld­fim mál­efni eru tekin til umfjöll­unar. Frétta­mið­illin TIME fjallar um sívax­andi áhrif Oliver.

Hér eru nokkur dæmi um hvernig breski sjón­varps­mað­ur­inn hefur haft áhrif til góðra verka.

Í júní gagn­rýndi Oliver hvernig veð, til að fá mann lausan úr haldi, koma niður á fátækum sak­born­ingum sem neyð­ast til að sitja á bak­við lás og slá án þess að hafa hlotið dóm. Fólk sem geti ekki greitt trygg­ing­una hafi tvo slæma kosti: að játa glæp­inn til að þurfa ekki að sitja í gæslu­varð­haldi eða dvelj­ast í fanga­klefa fram að rétt­ar­haldi.

Mánuði eftir gagn­rýni Oliver til­kynnti Bill de Blasio, borg­ar­stjóri New York borgar, að borg­ar­yf­ir­völd hygð­ust slaka á kröfu um veð gegn lausn úr haldi, þegar um væri að ræða afbrot þar sem ofbeldi kom ekki við sögu, og smá­glæpi.

Oliver hefur látið meinta spill­ingu innan FIFA sig varða, og gagn­rýnt for­ystu alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins harð­lega. Hann fjall­aði um spillta yfir­stjórn FIFA löngu fyrir umfangs­miklar aðgerðir banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar FBI, en sunnu­dag­inn eftir að hátt­settir menn innan sam­bands­ins voru hand­teknir, kall­aði Oliver ákaft eftir afsögn Sepp Blatter for­seta FIFA.

Á þriðju­dag­inn eftir þátt­inn varð Oliver svo að ósk sinni þegar Blatter til­kynnti skyndi­lega um afsögn sína, dag­inn eftir að hann var end­ur­kjör­inn for­seti FIFA.

Þá er talið að hörð gagn­rýni Oliver á boð­aðar laga­breyt­ingar um aðgengi almenn­ings í Banda­ríkj­unum að inter­net­inu (net neutrality), hafi haft mikil áhrif á að frá þeim var fallið. Í þætt­inum sínum sak­aði Oliver banda­rísk fjar­skipta­fyr­ir­tæki um að ætla sér græða á því að rukka not­endur auka­lega fyrir aðgang að sér­stökum hrað­brautum á ver­ald­ar­vefnum, og mis­muna þannig fólki eftir fjár­hag varð­andi aðgengi að net­inu.

Oliver hvatti aðdá­endur sína til að senda banda­rískum fjar­skipta­yf­ir­völdum kvörtun í tölvu­pósti vegna þessa, sem varð til þess að net­þjónar hrundu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár