Vindmyllur Danaveldis uppfylltu raforkuþörf landsins í hvassviðri - umframorkan úr landi

Vind­myllu­garðar upp­fylltu alla raf­orku­þörf Dan­merkur í hvass­viðri sem gekk yfir landið á fimmtu­dag­inn, og var umframorkan sem vind­myll­urnar beisl­uðu úr vind­orkunni seld til Þýska­lands, Noregs og Sví­þjóðar. Breski frétta­mið­ill­inn The Guardian greinir frá mál­inu.

Á fimmtu­dags­kvöldið fram­leiddu vind­myllur Dana­veldis raf­magn sem sam­svarar 116 pró­sentum af raf­orku­þörf lands­ins. Klukkan 03:00 aðfara­nótt föstu­dag­ins, þegar eft­ir­spurn eftir raf­magni dettur jefnan niður yfir hánótt­ina, hækk­aði fram­leiðslu­getan upp í 140 pró­sent umfram eft­ir­spurn.

Um 80 pró­sent af umframorkunni var skipt bróð­ur­lega á milli Þýska­lands og Noregs, sem hafa yfir bún­aði að ráða sem getur varð­veitt ork­una til notk­unar síðar. Svíþjóð tók fimmt­ungs­hlut­inn sem eftir var.

Engir draumórar að endurnýjanleg orka sjái jörðinni fyrir rafmagni


„Þetta sýnir að hug­myndir um að end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar sjái jörð­inni fyrir orku eru engir draum­órar,“ hefur The Guardian eftir Oliver Joy tals­manni evr­ópsku vind­orku­sam­tak­anna (The European Wind Energy Association). „Vindorka og aðrir end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar geta verið lausnin við kolefn­islosun heims­ins, og tryggt orku­ör­yggi þegar mikið liggur við.“

Upp­lýs­ing­arnar um áður­nefnda raf­orku­fram­leiðslu vind­myll­anna voru fyrst birtar á vef­síðu Energinet, sem rekur danska raf­orku­flutn­ings­kerfið, en þar er hægt að sjá hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í raf­orku­kerf­inu í raun­tíma. Þar má sjá að vind­myllu­garðar Dana­veldir voru meira að segja ekki á fullum afköstum, sem eru 4,8 gígawött, þegar hvass­ast var á fimmtu­dag­inn og aðfara­nótt föstu­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár