Danska lögreglan keypti njósnaforrit af Hacking Team fyrir tugi milljóna

Samkvæmt tölvu­póstum ítalska tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Hacking Team, sem upp­ljóstr­un­ar­síðan Wikileaks birti nýverið á vef­síðu sinni, keypti danska lög­reglan umdeilt njósn­a­for­rit af fyr­ir­tæk­inu. Danska tækni­frétta­síðan Version2 greinir frá mál­inu.

Eins og fjöl­miðlar hafa greint frá, eru tölu­vpóstar milli íslenskra lög­reglu­manna og Hacking Tema á meðal ríf­lega milljón tölvu­pósta tækni­fyr­ir­tæk­is­ins sem Wikileaks hefur nú birt. Þar for­vitn­ast lög­reglu­menn­irnir um sér­stakt njósn­a­for­rit sem gerir þriðja aðila kleift að fylgj­ast með nán­ast hverju sem er sem við­kom­andi gerir á snjall­sím­ann sinn.

Hacking Team hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir að búa til njósn­a­for­rit sem gerir aðilum kleyft að brjóta á frið­helgi einka­lífs­ins. Fyr­ir­tækið hefur selt for­ritið til lög­reglu­yf­ir­valda sem og fyr­ir­tækja.

Samkvæmt umfjöllun Version2 greiddu dönsk lög­reglu­yf­ir­völd Hackint Team 4,2 millj­ónir danskra króna, eða sem sam­svarar hátt í 84 millj­ónir íslenskra króna, fyrir njósn­a­for­rit sem getur fylgst með snjall­síma- og tölvu­notkun. Tals­maður hjá dönsku lög­regl­unni hefur stað­fest þetta í sam­tali við Version2.

Njósn­a­for­rit Hacking Team gefur aðgang að tölvu­póstum, myndum og öðrum skrám í við­kom­andi snjall­síma eða tölvu, og getur sótt mynd­bands­upp­tökur og kveikt á hljóð­nemum án vit­undar eig­and­ans.

Samkvæmt gögnum Wikileaks eru lönd eins og Banda­ríkin, Danmörk, Kasakstan, Súdan, Bahrein og Sádi-Arabía á meðal við­skipta­vina Hacking Team. Danska lög­reglan hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að hafa verslað jafn umdeildan búnað af ítalska tækni­fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár