FBI: Mistök við bakgrunnsskráningu gerðu Roof kleift að kaupa byssu

Hinn 23 ára gamli Dylann Storm Roof, sem er ákærður fyrir að hafa myrt níu svarta kirkju­gesti í Charleston þann 17. júní síð­ast­lið­inn, hefði ekki átt að geta keypt sér byssu sem hann not­aði við ódæðið, ef glæpur sem hann framdi skömmu fyrir morðin hefði verið rétt skráður í bak­grunns­gagna­banka. Þetta sagði James Comey yfir­maður banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar (FBI), en BBC greinir frá mál­inu.

Selj­endum skot­vopna er skylt sam­kvæmt lögum að fletta hverjum þeim upp í gagna­bank­anum sem hefur áhuga á að kaupa sér skot­vopn, til að kanna hvort þeir séu til þess bærir að kaupa byssu.

Comey full­yrti í sam­tali við blaða­menn í dag að Dylann Roof hefði aldrei átt að geta keypt sér byssu eftir að hann var grip­inn með fíkni­efni í fórum sínum nokkrum vikum fyrir voða­verkið í kirkj­unni í Charleston. Roof ját­aði sekt sína í fíkni­efna­mál­inu.

Yfir­maður FBI sagði að játn­ing Roof hefði ein og sér átt að nægja til að koma í veg fyrir að hann gæti keypt sér skot­vopn, en málið hefði verið vit­laust fært inn á saka­skrá hans. Það þýddi að grein­andi hjá FBI, sem kann­aði bak­grunn Roof sá ekki fíkni­efna­málið. „Ef hún hefði séð þetta lög­reglu­mál, þá hefðu þessi byssu­kaup aldrei átt sér stað,“ sagði Comey á blaða­manna­fund­inum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár