Bretum í Túnis sagt að flýja landið vegna yfirvofandi hryðjuverka

Utan­rík­is­ráðu­neyti Bret­lands brýnir fyrir Bretum í Túnis að yfir­gefa landið undir eins þar sem „mjög miklar líkur“ séu á að fleiri hryðju­verka­árásir séu yfir­vof­andi. Frétta­mið­ill­inn SkyNews greinir frá mál­inu.

Búið er að fjölga flug­ferðum frá land­inu og tvær breskar ferða­skrif­stofur stað­settar í Túnis hafa ákveðið að senda starfs­fólk sitt aftur til Bret­lands.

Breska utan­rík­is­ráðu­neytið segir að breskir ferða­menn eigi að yfir­gefa landið nema þeir þurfi nauð­syn­lega að dvelja þar. Þá er brýnt fyrir fólki að ferð­ast alls ekki til Túnis nema bráð nayðsyn krefji.


Talið er að hátt í fjögur þús­und Bretar séu í sum­ar­leyfi í Túnis.


Þann 26. júní síð­ast­lið­inn voru 38 ferða­menn, þar af þrjá­tíu Bretar, drepnir af byssu­manni á bað­strönd og við hótel í Port El Kantanoui, skammt frá Sousse. Herská sam­tök súnníta í Sádi Arabíu, sem eru tengd Íslamska rík­inu, lýstu yfir ábyrgð á voða­verk­inu.

Í til­kynn­ingu frá breska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að vís­bend­ingar um að fleiri hryðju­verka­árásir séu yfir­vof­andi í Túnis. Það hafi rann­sókn yfir­valda í land­inu leitt í ljós og hættan hafi auk­ist hratt á síð­ustu dögum.

„Fleiri hryðju­verka­árásir eru mjög lík­legar, meðal ann­ars á ferða­manna­stöðum, af hálfu ein­stak­linga sem eru í sam­bandi við hryðju­verka­sam­tök í gegnum sam­fé­lags­miðla. Nú er mik­il­vægt að vera á varð­bergi og fara að leið­bein­ingum yfir­valda í Túnis og ferða­skrif­stof­unnar þinnar, ef þú ert á vegum slíkrar,“ sagði Phillip Hammond utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands í sjón­varps­ávarpi í dag. „Eftir síð­ustu árás í Sousse hafa upp­lýs­ingar okkar gefið til kynna að myndin hafi versnað til muna, þannig að við teljum nú að líkur á fleiri hryðju­verka­árásum séu mjög miklar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár