Gríska stjórnin afgreiðir samkomulag - 13 milljarða evra niðurskurður í vændum

Gríska rík­is­stjórnin sam­þykkti á neyð­ar­fundi undir kvöld drög að sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína. The Guardian greinir frá því að þar sé gert ráð fyrir frek­ari 13 millj­arða evra nið­ur­skurði í rík­is­fjár­mál­unum, en að Grikkir muni óska eftir 50 millj­arða evra neyð­ar­láni. Hér er hægt að fylgj­ast með umfjöllun Guardian.

Ljóst er að nið­ur­skurð­ur­inn mun koma hart niður á hag­kerfi lands­ins, sem hefur verið í mik­illi kreppu um ára­bil, og þá hefur lokun gríska banka­kerf­is­ins ekki hjálpað til. Þá er talið að nið­ur­skurð­ur­inn í rík­is­fjár­mál­unum verði svo blóð­ugur og muni koma svo hart niður á þegnum Grikk­lands að til greina komi að veita land­inu frek­ari fjár­hags­að­stoð í mann­úð­ar­skyni.

Samkvæmt heim­ildum The Guardian er stefnt að því að kynna sam­komu­lagið fyrir kröfu­höfum gríska rík­is­ins í kvöld, en frest­ur­inn sem Grikkjum var gef­inn til að koma fram með raun­hæfa áætlun og sam­komu­lag rennur út á næstu klukku­stundum.

Þá hefur grískum þing­mönnum verið sagt að vera í við­bragðs­stöðu, því að öllum lík­indum muni gríska þingið þurfa að koma saman á morgun til að sam­þykkja sam­komu­lag­s­pakk­ann við kröfu­haf­ana.

Samkvæmt áætlun verða tækni­leg atriði samn­ings­drag­anna yfir­farin af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inum (AGS), Evr­ópu­sam­band­inu og Seðla­banka Evrópu á föstu­dag, fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna munu yfir­fara samn­ing­inn á laug­ar­dag og leið­togar evru­ríkj­anna funda á sunnu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár