Tollar af nærri tvö þúsund vörunúmerum afnumdir í tveimur skrefum

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­haga­ráð­herra, hefur boðað afnám allra tolla, að tollum á mat­vöru und­an­skildum, í tveimur skrefum. Stefnt er að afnámi tolla á fatnað og skó 1. jan­úar 2016 og afnám ann­arra tolla komi til fram­kvæmda 1. jan­úar 2017. Almenn vöru­gjöld höfðu áður verið afnumin um síð­ustu ára­mót.

Þetta kemur fram á vef­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í dag. Fyrr í dag var greint frá fyr­ir­ætl­unum ráð­herra um að afnema alla tolla nema á mat­vöru. Fram kemur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að gert sé ráð fyrir að 324 toll­skrár­númer, sem falla undir fatnað og skó, lækki í núll pró­sent á árinu 2016 og að 1609 toll­skrár­númer til við­bótar, sem eru aðrar vöru, lækki í núll pró­sent árið 2017.

„Tollar hafa hamlandi áhrif á við­skipti og draga úr alþjóða­við­skiptum í heild sinni. Þegar tollur er lagður á inn­flutta vöru hækkar verðið sem inn­lendir neyt­endur þurfa að greiða fyrir vör­una sem aftur dregur úr eft­ir­spurn eftir henni. Afnám tolla lækkar vöru­verð til neyt­enda, bætir sam­keppn­is­hæfni selj­anda og eykur skil­virkni á inn­lendum mark­aði,“ segir einnig.

Þriggja manna starfs­hópur sem skip­aður var í mars síð­ast­liðnum skil­aði skila­grein þann 15. maí síð­ast­lið­inn. Í henni kemur meðal ann­ars fram að gjald­færðar tekjur rík­is­sjóðs af tollum námu á árinu 2014 um 5,7 millj­örðum króna. Hlutfall mat­vöru var 34,2 pró­sent, hlut­fall fatn­aðar var 31,5 pró­sent og hlut­fall ann­arra vara var 34,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár