Bjarni vill afnema alla tolla nema á matvöru árið 2017

Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, seg­ist stefna að því að afnema alla tolla, að tollum á mat­vöru und­an­skildum, þann 1. jan­úar 2017. Þetta segir ráð­herr­ann í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag. Tekju­missir rík­is­sjóðs af afnámi þess­ara tolla, auk afnáms tolla á fatnað og skó sem tekur gildi 1. jan­úar næst­kom­andi, er sagður í kringum sex millj­arðar króna á ári. Ef afnám tolla á fatnað og skó er með­talið þá nemur tekju­missir fyrir rík­is­sjóð á bil­inu tólf til þrettán millj­örðum

Haft er eftir Bjarna að ekki þurfi að grípa til sér­stakra mót­væg­is­að­gerða vegna afnáms tolla. Þrátt fyrir þetta séu tekjur rík­is­sjóðs að vaxa. „Þess­ar aðgerðir eru hugs­aðar til þess að lækka vöru­verð, auka gegn­sæi í verð­mynd­un, bæta sam­keppn­is­hæfni og auka skil­virkni og nýta þannig bet­ur fram­leiðslu­þætt­ina,“ segir hann. „Það væri veru­lega mikið fram­fara­skref að ná að afnema á kjör­tíma­bil­inu bæði almennu vöru­gjöldin og þessa tolla, sem við höfum verið að inn­heimta und­an­farna ára­tugi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár