Grikkir verða að skila tilboði í dag - Örfáir dagar til stefnu

Frestur grískra stjórn­valda til að leggja fram nýtt sam­komu­lags­til­boð fyrir kröfu­hafa sína rennur út í kvöld. Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, fundar í dag með rík­is­stjórn sinni og er búist við að að til­boð verði form­lega lagt fram í kjöl­farið. Samkvæmt áætlun verða tækni­leg atriði samn­ings­ins yfir­farin af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inum (AGS), Evr­ópu­sam­band­inu og Seðla­banka Evrópu á föstu­dag, fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna munu yfir­fara samn­ing­inn á laug­ar­dag og leið­togar evru­ríkj­anna funda á sunnu­dag.

Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, ítrek­aði í morgun að ein­ungis þrír dagar séu til stefnu. Afar mik­il­vægt sé að raun­hæft til­boð ber­ist frá Grikkjum í dag. Hann tal­aði jafn­framt fyrir nauð­syn þess að kröfu­haf­arnir mæti til­boði Grikkja með raun­hæfum hætti og að skulda­staða gríska rík­is­ins geti borið sig eftir samn­inga.


Það er mat AGS að Grikkir þurfi um 60 millj­arða evra í formi nýrra lána og nið­ur­fell­inga eldri skuld­bind­inga. Grísk stjórn­völd ósk­uðu í gær form­lega eftir fjár­hags­að­stoð í gegnum sér­stakan neyð­ar­lána­sjóð evru­ríkj­anna, hið svo­kall­aða Evrópska stöð­ug­leika­kerfi.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lok­aðir síð­ustu níu við­skipta­daga og munu ekki opna fyrr en í fyrsta lagi næsta mánu­dag. Almenn­ingur getur á meðan aðeins tekið út að hámarki 60 evrur á dag úr hrað­bönkum. Blaða­menn The Guardian, sem fylgj­ast grannt með stöðu mála, hafa í dag greint frá nýlegum efna­hags­tölum í Grikk­landi, meðal ann­ars atvinnu­leysis­tölur sem sýna 25,6 pró­sent atvinnu­leysi í land­inu. Þá hefur almennt verð­lag í Grikk­landi lækkað um 2,2 pró­sent á síð­asta ári. Grikkir glíma því við verð­hjöðnun en ekki verð­bólgu.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár