Grikkir óska formlega eftir neyðaraðstoð - Tsipras mætti á Evrópuþingið

Grísk stjórn­völd ósk­uðu í dag form­lega eftir fjár­hags­að­stoð í gegnum sér­stakan neyð­ar­lána­sjóð evru­ríkj­anna, hið svo­kall­aða Evrópska stöð­ug­leika­kerfi. End­ur­nýjuð, form­leg ósk Grikkja var mik­il­væg fyrir næstu skref í lausn að miklum efna­hags­vanda rík­is­ins en leið­togar ann­arra evru­ríkja hafa talað opin­skátt um að fram­tíð Grikk­lands í evru­sam­starf­inu hangi á blá­þræði og ráð­ist mögu­lega á næstu dögum. Vonir stóðu til að Grikkir myndu leggja fram ný drög að sam­komu­lagi milli þeirra og kröfu­hafa í gær. Ekkert varð að því en búist er við að nýtt til­boð verði lagt fram á föstu­dag og rætt á leið­toga­fundi evru­ríkj­anna um helg­ina. Hætt var við fund fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna sem átti að fara fram í dag.

Seðla­banki Evrópu hefur varað grísk stjórn­völd við því að náist ekki sam­komu­lag næst­kom­andi sunnu­dag þá sé bank­inn nauð­beygður til þess að hætta fjár­hags­sað­stoð til grískra banka. Seðla­banki Evrópu hefur á síð­ustu mán­uðum lagt um 89 millj­arða evra í gríska fjár­mála­kerfið til þess að koma í veg fyrir banka­hrun. Aðstoð seðla­bank­ans til handa Grikkjum hefur verið af skornum skammti und­an­farnar vikur, á meðan ekki hefur náðst sam­komu­lag við kröfu­hafa um eft­ir­gjöf og end­ur­greiðslu skulda gríska rík­is­ins.

Orðaskipti á Evrópuþinginu

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, tal­aði á Evr­ópu­þing­inu í Strasbourg í morgun, auk Donald Tusk, for­seta ESB og Jean-Claude Junker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB. Viðbrögð við komu Tsipras í Evr­ópu­þingið voru blendin en hann sagði meðal ann­ars trúa því að rík­is­stjórn hans gæti mætt skuld­bind­ingum sínum, bæði Grikk­landi og evru­svæð­inu í hag. Vilji Tsipras og rík­is­stjórnar hans er að halda áfram evru­sam­starf­inu. Tusk tal­aði sem fyrr fyrir sam­komu­lagi milli deilu­að­ila og sagði meðal ann­ars að án þess stæði Grikk­land frammi fyrir banka­krísu og mögu­legum banka­gjald­þrotum. Á því myndu allir tapa.


Samkvæmt umfjöllun The Guardian urðu nokkuð hörð orða­skipti milli þing­manna Evr­ópu­þings­ins í kjöl­farið, meðal ann­ars vegna hryðju­verkaum­mæla fyrrum fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands. Þá hvatti hinn breski Nigel Farage, leið­togi UKIP hreyf­ing­ar­innar, Tsipras til þess að yfir­gefa evru­sam­starfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár