Gleði, friðsæld, gamlar goðsagnir og tónlistarþorsti á All Tomorrow´s Parties

Tón­list­ar­há­tíðin ATP Iceland 2015 er nýaf­staðin og var hún haldin í þriðja skiptið á gamla varn­ar­svæð­inu á Ásbrú nú um helg­ina. Á fimmta þús­und manns sóttu hátíð­ina þegar mest var. Á hátíð­inni voru eins og fyrri ár tvö svið, aðal­sviðið í Atlantic Studios og minna sviðið sem stað­sett er í Andrews Theater. Á svæð­inu var einnig boðið uppa kvik­mynda­sýn­ingar og fleira í Keilir Cinema sem og plötu­snúða í The Officer‘s Club.

Því miður var klúbbnum skyndi­lega lokað fyrsta kvöldið þar sem einn hátíð­ar­gesta setti bruna­varna­kerfið í gang og var því ekki hægt að halda skipu­lagðri dag­skrá gang­andi þar út hátíð­ina. Óhætt er að segja að aðstaða til hátíð­ar­halda á Ásbrú er til fyr­ir­myndar þó að und­ir­rit­aður sakn­aði örlítið grænni svæða.

Lifandi goðsagnir áttu fimmtudagskvöldið


Stærsti dag­ur­inn á hátíð­inni var án vafa fimmtu­dag­ur­inn því þá spil­uðu tón­list­ar­menn á borð við Iggy Pop, Public Enemy, Belle & Sebast­ian, Deafhea­ven og Run The Jewels. Þegar blaða­maður Kjarnans mætti á svæðið voru Chelsea Wolfe og hljóm­sveit í þann mund að gera sig klár í að fara á svið í Atlantic Studios. Chelsea var ein af fáum kven­kyns­flytj­endum á hátíð­inni í ár og var laga­prógram­mið hennar sam­sett af lögum fyrstu tveimur breið­skíf­unum, Apokalypsis og Pain Is Beauty, sem og vænt­an­legri breið­skífu hennar Abyss sem vænt­an­leg er í næsta mán­uði. Tónlist Chelsea er drunga­leg, dramat­ísk og þung sam­suða af nýbylgju- og þung­arokki þar sem áhrif frá PJ Harvey, Earth, SUNN O))) og Sonic Youth dúkka upp. Hljóm­sveitin átti í smá tækni­legum örðu­leikum til að byrja með en náði fljót­lega flugi og skil­aði sínu með miklum glæsi­brag. Næstir á svið voru Deafhea­ven frá San Francisco. Deafhea­ven er fimm manna rokk­sveit sem blandar saman svart­málmi við til­finn­inga­þrungið sveim­rokk og gerðu þeir það að mik­illi stað­festu og öryggi á fimmtu­dag­inn. Laga­listi Deafhea­ven sam­an­stóð af lögum annarri breið­skífu þeirra, Sun­bather, sem er ein af betri breið­skífum árs­ins 2013.

Næstur á svið var Lund­úna­bú­inn Kevin Martin sem fer fyrir The Bug sem átti stór­leik á Ásbrú. The Bug kom fram ásamt fjölda gesta­söngv­ara og fluttu þau hip hop-, grime- og dancehall af mik­illi ákefð og áfergju. Sann­ar­lega eitt af bestu atriðum kvölds­ins. Á eftir þeim stigu á stokk í Atlantic Studios einn af hápunktum hátíð­ar­innar, sjálfir Public Enemy. Public Enemy eru lif­andi goðsagnir sem hafa verið að í um þrjá ára­tugi og eru for­sprakk­arnir tveir, Chuck D og Flavor Flav, báðir að nálg­ast sex­tugt. Vægast sagt þá voru Public Enemy í topp­formi og rúll­uðu þeir í gegnum hvern slagar­ann á fætur öðrum. Flest lag­anna voru lög af fyrstu fjórum breið­skífum þeirra en eitt og eitt nýrra lag mátti finna inn á milli. Ekki var að sjá að þarna væru menn á sex­tugs­aldri að koma fram þar sem orkan og spil­a­gleðin var í fyr­ir­rúmi allt settið.

[caption id="attachment_33496" align="alignnone" width="1000"] Iggy Pop er 68 ára gam­all. Hann var samt sem áður ber að ofan nán­ast alla tón­leik­anna sem hann hélt á ATP, og í gríð­ar­legu stuði.[/caption]

Á eftir Public Enemy steig ald­urs­for­set­inn á hátíð­inni á stokk, hinn eini og sanni Iggy Pop. Það eru tvö ár í það að Iggy detti í sjö­tugt og lét hann öllum illum látum á meðan hann tætti í gegnum þekkt lög á borð við Lust For Life, Passen­ger, 1969 og I Wanna Be Your Dog. Hann gaf ekki tommu eftir alla tón­leik­ana og var flutn­ing­ur­inn til fyr­ir­myndar þó að á sviðið vant­aði lyk­il­mann eins og Mike Watt í bandið. Und­ir­rit­aður staldr­aði stutt við á Belle & Sebast­ian sem eru orðin mun fjör­legri en þau voru á sínum upp­hafs­árum. Kvöldinu lok­uðu þeir El-P og Killer Mike og fóru mik­inn í hljóm­sveit sinni Run The Jewels. Run The Jewels hafa sent frá sér tvær breið­skífur og tóku obbann af lög­unum á þeim. Flæðið og stuðið keyrt af fullum krafti á frá­bærum tón­leikum.

Pabbarokk-bragur á Mudhoney


Þegar und­ir­rit­aður mætti á svæðið á föstu­deg­inum voru grugg-hetj­urnar í Mudhoney að stíga á stokk í Atlantic Studios. Mudhoney voru ósköp afslapp­aðir á svið­inu og hama­gang­ur­inn ekki sá sami í þeim og þeir voru að stíga sín fyrstu skref á níunda ára­tugnum. Smá pabb­arokk-bragur yfir tón­leikum þeirra. Á eftir þeim komu emocore-goðsagn­irnar í Drive Like Jehu á svið á sínum einu tón­leikum í Evrópu þetta árið. Drive Like Jehu lögðu upp laupana um miðjan tíunda ára­tug­inn eftir að hafa gefið út tvær frá­bærar breið­skífur og sam­an­stóð tón­leika­pró­gramm þeirra af lögum af þeim tveim. Þeir töl­uðu ekki mikið á milli laga og virk­uðu flug­þreyttir á að líta í byrjun. Þeir voru þó fljótir í gang og fluttu lög á borð við „Caress“, „Rome Plows“ og „Luau“ af mik­illi inn­lifun, nákvæmni og spil­a­gleði.

[caption id="attachment_33492" align="alignnone" width="1000"] Pabb­arokks­bragur var á hinum sjó­uðu Mudhoney.[/caption]

Eitt stærsta band föstu­dags­ins var í með­limum talið voru Godspeed You! Black Emperor sem spila sömu­leiðis stóra tón­list sem hlaðin er boð­skapi og drama­tík. Þau hófu tón­leik­ana á öllum fjórum lögum nýj­ustu breið­skífu sinnar, Asunder, Sweet and Other Distress. Þau spil­uðu í tvo og hálfan tíma og tók það á marga að standa á steyptu gólf­inu þannig sumir nýttu tæki­færið og fóru í nudd sem boðið var uppá í tón­leika­salnum. Kvöldinu lok­aði The Field hinn sænski og galdr­aði fram dreym­andi tæknó sem tók mann inn í nótt­ina.

Margt gott í boði síðasta daginn


Margir vildu meina að öllum aðal­bönd­unum hefði verið óheppi­lega raðað á fyrsta dag­inn. Margt frá­bært var í boði síð­asta dag­inn og þegar Kjarnann bar að hafði kanadíska hljóm­sveitin Ought nýlokið spila­mennsku og HAM farnir að telja í. HAMarar voru hægir í gang en komust á skrið þegar á leið. Stuttu síðar í Andrew‘s Theater steig kuld­arokk-kvar­tett­inn BÖRN á svið og voru mjög sjálfsör­ugg og þétt á svið­inu, það var smá dollu­hljóð frá svið­inu en hljóm­sveitin skil­aði sínu vel. Á eftir þeim steig ein af eft­ir­tekt­ar­verð­ari sveitum hátíð­ar­innar á svið í Atlantic Studios og voru það hávaða­seggirnir í Lightn­ing Bolt. Sveitina skipa nafn­arnir Brian Chippendale og Brian Gibson og fram­kalla þeir háværan trans á bassa og trommur sem áhorf­endur kunnu vel að meta. Einna mest sakn­aði und­ir­rit­aður að heyra lög af annarri og þriðju breið­skífu sveit­ar­innar sem með melódísk­ari verkum þeirra ef svo má segja.

[caption id="attachment_32923" align="alignnone" width="549"] HAM voru lengi í gang en hrukku svo í gír­inn. Eins og rokklestin sem þeir eru.[/caption]

Í kjöl­farið á Lightn­ing Bolt var komið að goð­sagn­ar­kenndu sveit­inni Loop frá London sem nýverið gaf út sína fyrstu útgáfu í tæpa tvo ára­tugi. Loop spil­uðu hávaða­samt en sveim­kennt rokk sem minnir á MC5, My Bloody Val­entine og Wire, allt í senn. Í Andrew‘s Theater spil­aðu reyk­vísku hávaða­belgirnir Pink Street Boys og satt besta að segja var stemmn­ingin tryll­ings­leg og þeir alveg í ess­inu sínu þessa tón­leika. Hávær­astir allra hljóm­sveita á hátíð­inni voru Swans sem voru aug­lýstir að myndu spila í tvo og hálfan klukku­tíma í Atlantic Studios en þeir klipptu klukku­tíma aftan af tón­leikum sínum af óút­skýrðum ástæðum. Tón­leikar þeirra minntu um margt á eins konar messu þar sem söngv­ar­inn Michael Gira predik­aði og kyrj­aði af miklum móð. Viðkvæm eyru þurftu þónokkur frá að víkja enda hávað­inn mik­ill.

Ghostigi­tal stigu á stokk á eftir Swans og voru þeir ærsla­fullir að vanda. Einar Örn og Curver Thorodd­sen eru ein­stakt tvíeyki og vill greina­höf­undur taka fram að hefur enn ekki séð slaka tón­leika með þeim félögum sem komu fram þetta kvöldið ásamt Kaktusi og Guðlaugi úr Fufanu. Stein­snar í Andrew‘s Theater spil­aði ekki ósvipuð sveit og var það hip hop-þrí­eykið Clipping. frá Los Angeles sem fluttur höfðu verið um einn dag þar sem þeir höfðu lent í tíma­hrak­förum á leið­inni hingað til lands­ins. Clipping. sýndu frá­bæra takta og var flæðið hjá Daveed Diggs alveg hreint kostu­legt. Líkt og á tón­leikum Pink Street Boys þá stóð fjöldi tón­leika­gesta dans­andi í sætum og var það gaman að sjá.

Þrjú þúsund útlendingar og líklega aftur á næsta ári


ATP Iceland fór mjög vel fram í ár og lítið út á hana að setja nema hvað að missir var af stóru skemmti­tjaldi sem var fyrir utan Atlantic Studios í fyrra. Einnig heyrði maður túrista tala um hversu áber­andi lög­reglan var á svæð­inu í nei­kvæðri merk­ingu. Stemmn­ingin á hátíð­inni var mjög til fyr­ir­myndar og mikil gleði, frið­sæld og tón­list­ar­þorsti á svæð­inu alla helg­ina.

Kjarninn hitti fyrir aðal­skipu­leggj­anda hátíð­ar­innar sem var glaður í bragði og neit­aði því ekki að hátíðin verði aftur að ári. Vonandi verður það raunin sem og að hlutur kvenna verði stærri að ári. Fjöldi útlend­inga sem sóttu hátíð­ina í ár voru um þrjú þús­und tals­ins og er það ekk­ert nema jákvætt. Aðstaða til tón­leika­iðk­unar er til sóma eins og áður hefur komið fram og ekki veitir af þar sem loka á nokkrum af helstu tón­leika­stöð­unum í Reykja­vík á næstu mán­uðum.

Kjarninn hit­aði upp fyrir ATP með umfjöllun um öll helsti atriðin sem spil­uðu á hátíð­inni. Hægt er að sjá þá umfjöllun, hlaðna mynd­böndum af atrið­unum, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár