ATP: Tugir flytjenda, rappgoðsagnir, skoskt þjóðlagapopp og skortur á konum

Tón­elsk­andi fólk á Íslandi er búið að vera mjög heppið hvað varðar komu erlends tón­list­ar­fólks hingað til lands í ár. Óhætt er að full­yrða að úrval tón­leika og tón­list­ar­há­tíða er búið að vera með besta móti und­an­farin miss­eri og virð­ist ekk­ert lát vera á því. Þegar þessi orð eru rituð eru tvær stórar hátíðir að baki og sú þriðja u.þ.b. að fara að detta í gang.

All Tomorrow‘s Parties er bresk tón­list­ar­há­tíð sem haldin verður í þriðja skiptið á fyrrum her­stöð NATO á Ásbrú dag­ana 2., 3. og 4. júlí næst­kom­andi. Hátíð þessi var haldin í fyrsta skiptið á suð­ur­strönd Englands árið 2000 í smá­bænum Camber Sands sem er í u.þ.b. eins og hálfs tíma lestar­ferð frá London. Hug­mynd­ina að hátíð­inni eiga Eng­lend­ing­arnir Barry Hogan og Deborah Kee Higgins og er hún sú að hljóm­sveitir, tón­list­ar­fólk eða kvik­mynd­ar­gerð­ar­fólk hefur verið gert að svoköll­uðum sýn­ing­ar­stjórum (e. curator) sem setja saman tón­leika­dag­skrá með sínu eft­ir­lætis tón­list­ar­fólki og hljóm­sveitum.

Tón­leika­prógram­mið á að end­ur­spegla plötu­safn þess sem er sýn­ing­ar­stjóri hátíð­ar­innar hverju sinni. Meðal þeirra sem fengin hafa verið til verks­ins eru hljóm­sveitir á borð við Nick Cave and the Bad Seeds, The National, Modest Mouse, The Flaming Lips, Yeah Yeah Yeahs, The Breeders, Sleater-Kinney, The Shins, Shellac, Autechre, My Bloody Valetine, Mogwai, Sonic Youth, TV On The Radio, Pavement, The Mars Volta og Belle and Sebast­ian. Einnig hafa mynd­list­ar­menn­irnir Jake og Dinos Chapman verið sýn­ing­ar­stjórar sem og kvik­mynda­gerða­menn­irnir Matt Groening (höf­undur The Simpsons) og Vincent Gallo verið heið­urs aðnjót­andi að velja atriði á hátíð­ina sem haldin hefur verið í Englandi, Banda­ríkj­unum, Japan, Ástralíu og nú síð­ast á Íslandi.

Tón­list­ar­há­tíðin hefur ávallt verið haldin á afdönk­uðum sum­ar­leyf­is­stöðum þar sem tón­leika­gestum stendur til boða gist­ing í litlum íbúðum og að vera í mik­illi nálægð við tón­list­ar­fólkið sem fram kemur á hátíð­unum.

All Tomorrow's Parties - Music Documentary Trailer

https://www.youtube.com/watch?v=27sS-CflbI0

Á fimmta tug tón­list­ar­at­riða koma fram á hátíð­inni í ár og er úrvalið á tón­list­ar­at­riðum fjöl­breytt og tón­list­ar­dag­skrá þétt alla daga hátíð­ar­innar. Ef eitt­hvað mætti setja út á hátíð­ina í ár þá er það helst hvað hallar mikið á kven­kyns flytj­endur sem eru ekki mjög margar á hátíð­inni í þetta skiptið. Hlut­föll­inn á milli erlendra og inn­lendra flytj­enda eru nokkuð jöfn og eru flestir þeirra mik­ill hval­reki fyrir unn­endur fram­sæk­innar tón­listar á öllum sviðum. Hér er upp­taln­ing nokk­urra hljóm­sveita sem Kjarninn telur skylda á að sjá og kynna sér.

Fimmtu­dag­inn spila mörg þekkt­ustu nafn­anna á hátíð­inni og meðal þeirra sem spila er skoska þjóð­laga­poppsveitin Belle & Sebast­ian sem tví­vegis hefur spilað tón­leika hér á landi, einu sinni á Nasa og í hitt skiptið á Bræðsl­unni á Borg­ar­firði Eystri. Hljóm­sveitin hefur verið að í um tvo ára­tugi og er hún einn af kyndil­berum hinnar svoköll­uðu krútt­kyn­slóðar og á hún fjölda frá­bærra laga í sínum ranni enda hefur hún gefið út níu breið­skífur. Nýjasta plata þeirra, Girls in Peacetime Want to Dance er fín­asti gripur en þeirra bestu plötur eru án vafa Boy With The Arab Strab, Tigermilk og The Life Pursuit. Chelsea Wolfe er frá­bær og ein fárra kven­lista­manna sem fram koma á hátíð­inni og á hún að baki tvær frá­bærar breið­skífur og hennar þriðja kemur út í ágúst. Tónlist hennar er dul­ar­fullur hræri­grautur sem minnir á köflum á Earth, Sonic Youth, PJ Harvey og SUNN O))).

[caption id="attachment_32925" align="alignnone" width="1024"] Belle & Sebast­ian.[/caption]

Þekktust er hún lík­lega fyrir að eiga lagið „Feral Love“ í sjón­varps­þátta­röð­inni Game of Thrones. Deafhea­ven er banda­rísk svart­málm­sveit sem stofnuð var fyrir fjórum árum í San Francisco. Önnur breið­skífa þeirra heitir Sun­bather og er með betri skífum síð­ari ára þar sem áhrifum frá sveim­rokki og svart­málmi er blandað listi­lega vel saman. Grimm Grimm er ein­yrkja­verk­efni Japana að nafni Koichi Yamanoha sem fram­reiðir skemmti­legt skyn­villu­popp undir þónokkrum barokk áhrifum. Ef þið ímyndið ykkur Syd Barrett, Bítlana og Nico saman að gera tón­list þá myndi útkoman senni­lega líkj­ast tón­list Koichi.

[caption id="attachment_32922" align="alignnone" width="1024"] Run The Jewels.[/caption]

Iggy Pop þarf vart að kynna enda hefur hann verið að frá því á sjö­unda ára­tugnum og í ljósi tón­list­ar­sög­unnar er merki­legt að bera hann augum og eyrum þó hann sé ekki það fers­kasta á hátíð­inni. Aðrar goðsagnir á fimmtu­dags­kvöld­inu eru póli­tíska hiphop-sveitin Public Enemy sem eru enn í fullu fjöri, þeirra bestu plötur, It Takes a Nation of Millions to Holds Us Back og Fear of a Black Planet komu út á síð­ustu öld og þykja enn með merk­ari hiphop-skífum allra tíma. Önnur hiphop-sveit sem spilar á fimmtu­deg­inum og er alls ekki síðri er Run The Jewels sem leidd er af þeim El-P og Killer Mike og eru báðar breið­skífur þeirra með betri hiphop-skífum sem komið hafa út síð­ustu ár. Tvær af betri íslensku sveit­unum sem fram koma í ár eru án efa Grísalappalísa og Kippi Kanínus og koma þær báðar fram á fimmtu­dags­kvöld­inu. Mr. Silla er einnig að gera frá­bæra hluti á vænt­an­legri breið­skífu sinni spilar hún rétt eftir mið­nætti á fimmtu­dags­kvöld­inu.

[caption id="attachment_32921" align="alignnone" width="1024"] Mr. Silla.[/caption]

Belle & Sebast­ian – The Party Line

https://www.youtube.com/watch?v=3vS1Hf3CVGs

Chelsea Wolfe – Feral Love

https://www.youtube.com/watch?v=49MYJkEazIg

Deafhea­ven – Dream House

https://www.youtube.com/watch?v=RWyVhIBmdGw

Grimm Grimm – Hazy Eyes Maybe

https://www.youtube.com/watch?v=6RAwF07dm2c

Public Enemy – Don‘t Believe the Hype

https://www.youtube.com/watch?v=9vQaVIoEjOM

Run The Jewels – Run The Jewels

https://www.youtube.com/watch?v=AfuCLp8VEng

Föstu­dag­ur­inn er einnig frá­bær og alls ekki síðri en fimmtu­dags­kvöldið. Bardo Pond er sæka­delíu-rokkkvin­tett frá Fíla­delfíu í Banda­ríkj­unum. Sveitin hefur verið að frá því um miðjan tíunda ára­tug­inn og er sveitin leidd af hinum gít­ar­spilandi Gibbons-bræðrum. Tónlist þeirra er sveim­kennd, fal­leg og stundum mylj­andi þungur bræð­ingur sem minnir á Black Sabbath, My Bloody Val­entine, Neil Young og Hawkwind.

Dönsku síð­pönk­ar­arnir Iceage hafa verið leið­andi í pönk­sen­unni í Kaup­manna­höfn í nokkur ár og eru allar plötur þeirra algjört afbragð, sér­stak­lega fyrstu tvær. Þeir sverja sig í ætt við The Birthday Party, Liars, WU LYF, Big Black og fleiri góðar sveitir og gera það vel. Clipping. er þriðja hiphop-atriðið á hátíð­ini og lík­leg­ast fram­sækn­asta af þeim öllum. Clipping. eru hávaða-hiphop af bestu sort og ættu að falla vel í kramið hjá fylgj­endum Death Grips, Shabazz Palaces og Danny Brown. Ekki skemmir að þeir gefa út hjá gæða­merk­inu Sub Pop í Seattle.

Frá Sub Pop koma einnig goðsagn­irnar í Mudhoney sem fjöl­margir íslenskir rokkunn­endur þekkja þar sem sveitin kom fyrst fram í fæð­ingu gruggs­ins ásamt sveitum á borð við Nirvana, Tad, Soundgarden o.s.frv.. Önnur goð­sagna­kennd sveit er San Diego-sveitin Drive Like Jehu sem sneri aftur á sjón­ar­sviðið á síð­asta ári eftir tæp­lega tveggja ára­tuga hlé. Drive Like Jehu gaf út tvær fram­úr­skar­andi post-hardcore skífur á tíunda ára­tug síð­ustu aldar sem höfðu mót­andi áhrif á sveitir á borð við At the Drive-In, …And You Will Know Us by the Trail of Dead, The Blood Brothers og The Locust. Þetta verða einu tón­leikar þeirra í Evrópu á þessu ári og tón­leika­mynd­bönd sýna að þeir hafa engu gleymt þrátt fyrir langa fjar­veru.

Lund­úna­bú­inn Kevin Martin fer fyrir hinni kyngi­mögn­uðu raf­sveit The Bug. Kevin er einn af frum­kvöðlum fyrstu dubstep-bylgj­unnar í London sem gaf af sér lista­menn á borð við Burial, Skream, James Blake, Kode9 og fleiri. Nýjasta breið­skífa hans, Angels & Devils, kom út á vegum gæða­merk­is­ins Ninja Tune og meðal gesta á henni Liz Harris úr Grouper, Death Grips og Inga Copeland. Kanadísku til­raun­arokk­ar­arnir Godspeed You! Black Emperor risu uppúr síð­rokk­bylgj­unni sem tröll­reið öllu fyrir síð­ustu alda­mót. Á svip­uðum tíma og sveitir á borð Mogwai og Sigur Rós voru að stíga sín fyrstu skref gáfu GY!BE fyrstu skífur sína sem voru hlaðnar dulúð, drama­tík og póli­tískum boð­skap.

Sænski teknó-snill­ing­ur­inn Axel Willner fer fyrir The Field og er þetta í annað skiptið sem hann heim­sækir Ísland. Hann er til mála hjá hinni virtu Kompakt-útgáfu í Þýska­landi sem einnig gefur út okkar eigin GusGus. Úr íslensku deild­inni bera hæst tón­skáldin Daníel Bjarna­son og Valgeir Sig­urðu­son sem stýra kvöldi á vegum Bedroom Community (eitt metn­að­ar­fyllsta útgáfu­fé­lag Íslands fyrr og síðar) og síð­ast en ekki síst JFDR sem er sól­ó­verk­efni Jófríðar Áka­dóttur úr Samaris og Pascal Pinon.

Bardo Pond – Kali Yuga Blues

https://www.youtube.com/watch?v=3CUqURTZnzw

Clipping. – Work Work

https://www.youtube.com/watch?v=-2GozE6XEqg

Iceage – Forever

https://www.youtube.com/watch?v=EagCKe2Au8E

Drive Like Jehu – Here Come The Rome Plows

https://www.youtube.com/watch?v=h3JEkDShKoc

Mudhoney & Pearl Jam – Kick Out The Jams

https://www.youtube.com/watch?v=6Kz8Viy5d3w

Godspeed You! Black Emperor – Moya

https://www.youtube.com/watch?v=Rsf2LoLk3SA

The Bug – Void (ft. Grouper)

https://www.youtube.com/watch?v=3qVZ5wvBcGg

The Field – The Deal

https://www.youtube.com/watch?v=5I41qt-O8Rk

Margt frá­bært er á boðstólnum á laug­ar­deg­inum, sem er síð­asti tón­leika­dag­ur­inn. Frá Montreal í Kanada kemur ein af áhuga­verð­ari nýbylgju­sveitum nútím­ans og heitir hún Ought. Sveitina stofn­aði söngv­ar­inn og gít­ar­leik­ar­inn Tim Beeler árið 2011. Tónlist þeirra svipar að miklu leyti sveita á borð við Talking Heads, Clinic, Tel­evision, Viet Cong og fleirri mætra sveita. Þrjár af öfga­fyllstu tón­list­ar­at­rið­unum í ár spila á laug­ar­deg­inum og eru það Lightn­ing Bolt, Ghostigi­tal og Swans.

Lightn­ing Bolt er lit­rík hávað­arokk­sveit frá Rhode Island í Banda­ríkj­unum og er skipuð skrímsla­trymbl­inum Brian Chippendale og bassa­leik­ar­anum Brian Gibson. Þeir eru þekktir fyrir háværa tón­leika þar sem sveitin spilar oftar en ekki á öllum stöðum nema hefð­bundnu tón­leika­sviði. Ghostigi­tal eiga enga sína líka og eru tón­leikar með þeim ávallt mikil upp­lifun. Swans er list­ræn hávaða­sveit sem stofnuð var af söngv­ar­anum Michael Gira í New York árið 1982.

Swans er sam­tíma­sveit Sonic Youth, Nick Cave & The Bad Seeds og Pussy Galore og geta öfga­full þyngslin og hávað­inn í þeim verið slegið flestu við. Síðustu tvær breið­skífur þeirra eru með mestu stór­virkjum síð­ari ára. Íslenska deildin er hávær á laug­ar­deg­inum verður nauð­syn­legt að skella sér á tón­leika HAM, Barna og Pink Street Boys.

[caption id="attachment_32923" align="alignnone" width="549"] HAM.[/caption]

All Tomorrow‘s Parties er mikil veisla fyrir tón­list­arunn­endur sem sækja í fram­sækna tóna á jaðr­inum og er mik­ill hval­reki að fá slíka hátíð til lands­ins. Hátt í þrjú þús­und manns sækja hátíð­ina erlendis frá og hafa Íslend­ingar verið að taka við sér und­an­farna viku og stefnir í að hátíðin verði vel lukkuð í ár. Grein­ar­höf­undur vonar að svo vel tak­ist til að hátíðin nái að vaxa og dafna hér á landi um ókomin ár því hún er bráð­skemmti­leg bót við tón­leikaflór­una hér á landi.

Nánari upp­lýs­ingar um hátíð­ina má finna á heima­síðu hennar.

Ought – The Weather Song

https://www.youtube.com/watch?v=qXt_Jpvtu5Q

Ghostigi­tal – Don‘t Push Me

https://www.youtube.com/watch?v=HNXXARoL_qc

Lightn­ing Bolt – Dracula Mountain

https://www.youtube.com/watch?v=8JpHoAnaPK0

Loop – Vapour

https://www.youtube.com/watch?v=eckF_Rcsk3w

Swans – A Screw (Holy Money)

https://www.youtube.com/watch?t=125&v=yHES9YAGGkU

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár