Blóðbað í Chicago - Sjö drepnir um helgina, þar af einn sjö ára drengur

Að minnsta kosti 40 manns særð­ust og sjö féllu í skotárásum sem áttu sér stað í Chicago-borg um helg­ina, en Banda­ríkja­menn fögn­uðu þjóð­há­tíð­ar­degi sínum á laug­ar­dag­inn, þann 4. júlí. Frétta­stöðin CNN greinir frá mál­inu.

Um er að ræða tíma­bilið frá morgni föstu­dags til síð­degis á sunnu­dag, en á meðal þeirra sem létu lífið um helg­ina í Chicago var sjö ára drengur. Hann varð fyrir byssu­kúlu sem var ætluð föður hans, sem er hátt­settur klíku­með­limur í borg­inni. Faðir hans hafði verið hand­tek­inn 45 sinnum og var með langa saka­skrá. Feðgarnir voru að fylgj­ast með flug­elda­sýn­ingu á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn þegar þeir og aðrir við­staddir lentu skyndi­lega í byssu­kúlna­regni.

Lög­reglu­yf­ir­völd í Chicago hafa und­an­farin ár átt í harðri bar­áttu við klíkur í suð­ur­hluta borg­ar­innar, sem er fátæk­asta svæði vinda­sömu borg­ar­innar við Michigan-vatn. Chicago er með hættu­legri borgum Banda­ríkj­anna og með eina hæstu morð­tíðn­ina.

„Kerfið okkar er bilað“


Í suð­ur­hluta borg­ar­innar er byssu­eign mjög útbreidd og hefur lög­regla ráð­ist í sér­stakt átak til að fækka byssum á götum borg­ar­innar. Frá því á föstu­dags­morgun hafa lag­anna verðir hald­lagt eitt skot­vopn á hverri klukku­stund.

„Kerfið okkar er bilað, og við þurfum að gera við það,“ hefur CNN eftir lög­reglu­stjór­anum Garry McCarthy. „Glæpa­menn ótt­ast ekki rétt­ar­kerfið, og því þarf að breyta. Við verðum að hefta flæði skot­vopna til borg­ar­innar. Ef þeir ótt­ast ekki við­ur­lögin að vera með ólög­legt skot­vopn, þá er eitt­hvað að.“

Þrátt fyrir blóð­uga þjóð­há­tíð­ar­helgi í Chicago, voru skotárás­irnar 64 tals­ins á sama tíma­bili í fyrra. Þá slös­uð­ust 69 og fimmtán létu lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár