Yfirgnæfandi meirihluti Grikkja hefur hafnað samkomulaginu - 61 prósent segja nei

Nú þegar meira en helm­ingur atkvæða hefur verið tal­inn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í Grikk­landi, hafa ríf­lega 61 pró­sent grískra kjós­enda kosið að hafna sam­komu­lagi við kröfu­hafa gríska rík­is­ins um frek­ari aðhalds­að­gerðir í rík­is­rekstr­inum í skiptum fyrir frek­ari fjár­hags­að­stoð. Um 39 pró­sent vildu hins vegar fall­ast á sam­komu­lagið.

Kjör­staðir í Grikk­landi lok­uðu klukkan 16 í dag, en Grikkjum var ein­ungis heim­ilt að kjósa í því kjör­dæmi sem þeir höfðu lög­heim­ili í, og voru því margir Grikkir á far­alds­fæti í dag og und­an­farna daga. Fyrstu útgöngu­spár bentu til þess að svona myndi fara, að Grikkir myndu segja nei við sam­komu­lag­inu, en naum­lega þó.

Annað hefur þó komið á dag­inn, enda hafa helstu stjórn­mála­leið­togar lands­ins, þeirra á meðal for­seti lands­ins Alexis Tsipras, hvatt lands­menn sína und­an­farna daga til að hafna sam­komu­lag­inu. Það virð­ist hafa borið árangur því yfir­gnæf­andi meiri­hluti Grikkja hefur ákveðið að kjósa nei við sam­komu­lag­inu, en gríð­ar­legur mann­fjöldi hefur safn­ast saman í mið­borg Aþenu til að fagna úrslit­unum.

Samkvæmt BBC eru engin funda­höld á milli leið­toga helstu ríkja Evrópu fyr­ir­huguð í kvöld eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una, en Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands og Francoise Holland, for­seti Frakk­lands, ætla á hitt­ast til að ræða stöð­una sem uppi er.

Búist er við þvi að Syriza-flokk­ur­inn, sem leiðir rík­is­stjórn Grikk­lands, muni nota afger­andi nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar til að styrkja samn­ings­stöðu sína gagn­vart helstu kröfu­höfum lands­ins, þrí­eyk­inu sem sam­anstendur af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, Evrópska Seðla­bank­anum og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár