Sænskir hægri flokkar herða stefnuna í innflytjendamálum

Mið­alda­borgin Visby á Gotlandi á sér langa og merki­lega sögu. Hún var þegar orðin mið­stöð versl­unar í Eystra­salti um það leyti sem Ingólfur tók sér vet­ur­setu á Íslandi og enn má skoða borg­ar­múr­ana sem eru ríf­lega 700 ára gamlir. Vegna stað­setn­ing­ar­innar hafa fjöl­margir bar­dagar verið háðir á eynni og bæði Danir og Rússar réðu yfir henni um tíma.

Eftir mikið hnign­un­ar­skeið frá sext­ándu öld hefur borgin byggst upp á síð­ustu ára­tugum og er nú einn vin­sæl­asti áfanga­staður Svía sem fylla hana á hverju sumri. Fyrsta vikan í júlí er hins vegar afar sér­stök því þá sam­ein­ast í Visby bók­staf­lega allir sem fara með ein­hver völd í Svíþjóð.

Almedalsvikan er merki­legur við­burður þar sem stjórn­mála­menn, for­svars­menn fyr­ir­tækja og stofn­ana, full­trúar sam­taka og eig­in­lega bara allir sem vija hafa áhrif í Svíþjóð hitt­ast á form­legum og óform­legum fundum. Sagan segir að sala á rósa­víni nái óþekktum hæðum þessa vik­una og víst er að kok­teil­boðin eru bæði mörg og glæsi­leg.

[caption id="attachment_33263" align="alignnone" width="725"] Bærinn Visby á Gotlandi. Mynd: Wikimedia Commons[/caption]

Það var Olof Palme sem var í raun upp­hafs­maður vik­unnar en fjöl­skylda hans dvald­ist í sum­ar­húsi á Fjárey sem liggur rétt fyrir utan Gotland. Reyndar var það ekki fyrr en í byrjun níunda ára­tug­ar­ins sem vikan fékk þá mynd sem hún hefur í dag og þótt þá hafi það bara verið Jafn­að­ar­menn sem skipu­lögðu við­burð­inn fylgdu hinir flokk­arnir í kjöl­farið og hafa nær óslitið tekið þátt síðan þá. Nú fær hver stjórn­mála­flokkur á sænska þing­inu einn dag til að láta ljós sitt skína í Almeda­len og setja fram stefnu fyrir næsta ár.

Vinstri flokkurinn í harðari stjórnarandstöðu


Staðan í sænskum stjórn­málum er óvenju flókin því bæði hefur stjórnin ekki meiri­hluta á þingi og þar að auki brutu Sví­þjóð­ar­demókratar ára­tuga hefð með því að fella fjár­lög stjórn­ar­innar. For­sæt­is­ráð­herr­ann Stefan Löfven þarf því að semja um hvert ein­asta mál sem mun reyn­ast þrautin þyngri. Hann mynd­aði stjórn með Umhverf­is­flokknum en getur hins vegar alls ekki reitt sig á stuðn­ing Vinstri flokks­ins, syst­ur­flokks VG, sem í ára­tugi varði minni­huta­stjórnir Jafn­að­ar­manna falli.

Leiðtogi Vinstri flokks­ins var harð­orður í gagn­rýni sinni á stjórn­ina þegar hann tal­aði í Almeda­len í gær. Hann hét því að reka rót­tæka stjórn­ar­and­stöðu þar sem sér­stak­lega yrði lögð áhersla á vel­ferð­ar­mál og umhverf­is­mál. Hann lýsti jafn­framt yfir stuðn­ingi við grísku stjórn­ina og sagði ekki við hæfi að styðja stofn­anir Evr­ópu­sam­bands­ins í bar­áttu gegn því að lýð­ræð­is­legur vilji þjóð­ar­innar næði fram að ganga.

Á þessu fyrsta ári nýrrar stjórnar hefur í raun ekki margt gerst. Engar koll­steypur hafa orðið og ljóst að veik staða mun þýða að færri rót­tækar breyt­ingar nái fram að ganga.

[caption id="attachment_33264" align="alignnone" width="749"] Jonas Sjöstedt leið­togi Vinstri flokks­ins. Mynd: EPA[/caption]

 

Svíþjóðardemókratar í ökumannssætinu


Stuðn­ingur við Sví­þjóð­ar­demókrata hefur aldrei mælst meiri en í nýj­ustu könn­un­unum og ljóst að hvert hneyksl­is­málið á fætur öðrum hefur ekki hrakið kjós­endur frá flokknum. Hér áður fyrr vildu fáir við­ur­kenna að þeir styddu flokk­inn eða stefnu­mál hans en það hefur breyst. Í Noregi er syst­ur­flokkur Sví­þjóð­ar­demókrata í stjórn og Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er orð­inn stærsti flokk­ur­inn á borg­ara­lega vængnum.

Hingað til hafa hinir sænsku flokk­arnir farið þá leið að hafna allri sam­vinnu við flokk­inn en margt bendir til að það sé að breyt­ast. Í Almeda­len kom reyndar í ljós að flokk­ur­inn hefur í raun þegar unnið stóran sigur því Kristi­legir demókratar hafa tekið upp mörg stefnu­mál hans.

Kristi­legir demókratar hafa verið í til­vist­ar­kreppu um langa hríð en eftir for­manns­skiptin í vor varð ljóst að flokk­ur­inn vildi flytja sig lengra til hægri. Ebba Busch Thor er aðeins 28 ára gömul en hefur gert sig gild­andi í umræðu um skatta­lækk­anir, fóst­ur­eyð­ingar og nú síð­ast um inn­flytj­enda­mál. Ræða hennar í Almeda­len snérist að miklu leyti um inn­flytj­endur og íslams­trú. Hún sagði meðal ann­ars að hinu opna lýð­ræð­is­lega sam­fé­lagi væri hótað af öfga­mönnum og lagði meðal ann­ars til að dæma mætti þá sem færu frá Svíþjóð til að berj­ast með ISIS fyrir föð­ur­lands­svik. Tónninn í ræð­unni var harður og hingað til hafa aðeins Sví­þjóð­ar­demókratar talað á slíkan hátt.

 

Vilja auka kröfur sem gerðar eru til innflytjenda


Nýr for­maður stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins Modera­terna, Anna Kingberg Batra, hélt sína fyrstu Almedals­ræðu í vik­unni og þar var aðal­á­herslan á atvinnu­mál. Flokk­ur­inn leiddi rík­is­stjórn­ina síð­ustu átta ár en fékk harðan skell í kosn­ing­unum í fyrra þrátt fyrir að hafa fengið góð ummæli fyrir stjórn efna­hags­mála á krísu­ár­unum.

Kingberg Batra sagði að for­senda fram­fara væri að sem flestir hefðu vinnu, ekki aðeins með til­liti til efna­hags­mála heldur vís­aði hún mikið til þess að fólki þyrfti að finn­ast það hluti af sam­fé­lag­inu. Um leið og tæki­færi fólks til að fá vinnu væru bætt þyrfti hins vegar að gera auknar kröfur til þeirra. Harðari inn­flytj­enda­stefna felst meðal ann­ars í því að fólk fái aðeins tíma­bundin dval­ar­leyfi og að auknar kröfur verði gerðar um fram­færslu þeirra sem flytja til lands­ins vegna fjöl­skyldu­tengsla við ein­hvern sem þegar hefur fengið dval­ar­leyfi. Í raun minnir mál­flutn­ingur þessa syst­ur­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á stefnu danskra Jafn­að­ar­manna sem hertu sína inn­flytj­enda­stefnu fyrir síð­ustu kosn­ingar.

[caption id="attachment_33265" align="alignnone" width="752"] Anna Kingberg Batra for­maður Moder­atarna. Mynd: EPA[/caption]

Hingað til hafa for­menn Modera­terna algjör­lega úti­lokað alla sam­vinnu við Sví­þjóð­ar­demókrata. Innan flokks­ins eru þó sífellt hávær­ari raddir sem vilja breyta þeirri stefnu og á Skáni segja for­svars­menn Modera­terna að flokk­arnir hafi sömu stefnu í átta málum af hverjum tíu. Kingberg Batra er hins vegar ekki spennt fyrir sam­starfi og tal­aði í ræðu sinni um Sví­þjóð­ar­demókrata sem vinstri flokk sem myndu þenja út rík­is­báknið.

 

Sænska þjóðin virðist einnig vilja harðari innflytjendastefnu


Í raun kemur ekki á óvart að flokk­arnir fari þessa leið. Sví­þjóð­ar­demókratar hafa náð miklum árangri og margt bendir til að sam­bæri­legur mál­flutn­ingur skili atkvæðum í kass­ann. Nýjasta dæmið er frá Bret­landi þar sem að Íhalds­flokk­ur­inn náði óvæntum meiri­hluta, meðal ann­ars vegna harð­ari tóns í inn­flytj­enda­málum. Þá hefur einnig verið bent á að stór hluti sænsku þjóð­ar­innar virð­ist ein­fald­lega vera þeirrar skoð­unar að breyta þurfi áherslu þegar kemur að inn­flytj­enda­málum.

Í könnun sem gerð var fyrir SVT kom í ljós að 65 pró­sent sögð­ust óánægð með það hvernig staðið væri að mál­efnum inn­flytj­enda, þar af voru 40 pró­sent mjög óánægð. Könn­un­ar­fyr­ir­tækið ræddi við ríf­lega þús­und Svía sem sögðu að þeir væru bæði ósáttir við fjölda inn­flytj­enda og að þeir teldu að aðlögun inn­flytj­enda væri ekki full­nægj­andi. Ríflega helm­ingur vill nú að stjórn­mála­flokkar vinni með Sví­þjóð­ar­demókrötum en sam­svar­andi tala í febr­úar var 43 pró­sent. Um leið eru nú mun færri and­vígir því að unnið sé með Sví­þjóð­ar­demókrötum eða 33 pró­sent í stað 41 pró­sent í febr­úar.

Miðað við þró­un­ina í Noregi, Finn­landi og Danmörku má ætla að Sví­þjóð­ar­demókratar þurfi ekki að bíða í mjög mörg ár eftir sæti í betri stof­unni. Sænsk stjórn­mál hafa breyst mikið á síð­ustu árum. Líklegt má telja að frek­ari breyt­inga sé að vænta og að sama þróun verði þar eins og í nágranna­lönd­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár