Sigmundur Davíð: Landsmenn hafa ástæðu til að vera bjartsýnir - Verður áfram í pólitík

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að á síð­ustu tveimur árum hafi þingið tek­ist á við vanda­mál og úrlausn þeirra en nú sé Ísland komið í upp­bygg­ingar-gír­inn. Það sjá­ist meðal ann­ars á miklum áhuga á að fjár­festa víða um land og fjölgun starfa sem haldi áfram með auk­inni fram­leiðni og hærri launum. „Lands­menn hafa mikla ástæðu til að vera bjart­sýnir,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann í við­tali í Síð­deg­is­út­varpi Rásar 2 í dag, í til­efni af þing­lokum í dag. Þar svar­aði hann meðal ann­ars spurn­ingu um seinni hluta kjör­tíma­bils­ins.

Sig­mundur Davíð sagð­ist ekki vera að tala um ákveðin verk­efni heldur almennt, þegar hann var spurður hvort hann ætti sér­stak­lega við fyr­ir­hugað álver í Skaga­byggð í tali sínu um upp­bygg­ingu og aukna fjár­fest­ingu á Íslandi. „Það eru mörg stór verk­efni í far­vatn­inu. Þau verða sjálf­sagt ekki öll að veru­leika og það er ekki þing­manna að kveða úr um hvað verður og hvað ekki, heldur að búa til aðstæður þannig að menn vilji koma hingað og fjár­festa,“ sagði hann. Spurður út í fyr­ir­hugað álver ítrek­aði hann fyrra svar og sagði það ekki þing­manna að ákveða um ein­stök verk­efni heldur mynda rétta hvata og aðstæður til upp­bygg­ingar.


For­sæt­is­ráð­herra var spurður að því hvort hann ætl­aði sér að gefa kost á sér áfram eftir yfir­stand­andi kjör­tíma­bil, eftir tvö ár. „Ég ætla að gera það, já,“ sagði hann afdrátt­ar­laust. Hann sagði starf þing­manns, og ekki síst for­sæt­is­ráð­herra, ekki ólíkt starfi frétta­manns sem hann þekkti frá fyrri tíð. Það kref­ist þess meðal ann­ars að fara úr einu verk­efni í annað og hann þurfi að setja sig inn í mis­mun­andi hluti jafn­óðum. „Maður er alltaf að læra og uppgvöta eitt­hvað nýtt,“ sagði hann og bætti við að það kæti þegar hann sjái árangur af störfum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár