Lögmæti grísku atkvæðagreiðslunnar fyrir dómstólum - Fylgið hnífjafnt

Æðsti dóm­stóll Grikk­lands mun skera úr um hvort boðuð þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla næsta sunnu­dag, um samn­inga við kröfu­hafa gríska rík­is­ins, stand­ist stjórn­ar­skrá lands­ins. Í atkvæða­greiðsl­unni verða Grikkir spurðir hvort þeir vilji þyggja fjár­hags­að­stoð frá Evr­ópu­sam­band­inu og alþjóða­stofn­unum gegn frekara aðhaldi og nið­ur­skurði í rík­is­rekstri.

Nei-liðar, með Tsipras for­sæt­is­ráð­herra í broddi fylk­ingar, telja að skýr afstaða þar sem samn­ingum er hafnað muni bæta samn­ings­stöðu Grikk­lands. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum er fylgið hnífjafnt. Í morgun birt­ist skoð­ana­könnun sem sýndi 44,8 pró­sent fylgi við sam­þykki samn­inga en 43,4 pró­sent fylgi við að þeim verði hafnað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni. Samkvæmt sömu könnun vilja 74 pró­sent Grikkja halda áfram evru­sam­starf­inu og 15 pró­sent vilja taka upp eigin mynt. Könnun Bloomberg frétta­stof­unnar bendir til hins sama hvað þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una varðar, 42,5 pró­sent sögð­ust ætla kjósa „já“ en 43 pró­sent myndu kjósa „nei“. Um 14,5 pró­sent aðspurðra sögð­ust óákveðin.

Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­hald­andi veru í evru­sam­starf­inu. Í gær gaf Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) út yfir­lýs­ingu og sagði Grikk­land þurfa 50 millj­arða evra til við­bótar næstu þrjú árin og viða­mikla nið­ur­fell­ingu skulda til þess að ná jafn­vægi í hag­kerfið. Um 1,6 millj­arða evra end­ur­greiðsla af fyrra láni frá AGS féll á gjald­daga í byrjun júlí­mán­aðar. Slíkt gæti alla jafna haft gríð­ar­legar afleið­ingar og hrint af stað keðju­verkun þar sem önnur lán til Grikkja falla á gjald­daga. Málið snýr þó aðeins öðru­vísi vegna þess að um er að ræða lán frá AGS. Í dag til­kynnti Evrópski fjár­mála­stöð­ug­leika­sjóð­ur­inn, EFSF, síðan að ekki verði gerð krafa um end­ur­greiðslu nærri 150 millj­arða evra láns vegna ákvörð­unar grískra stjórn­valda um að greiða ekki AGS, að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár