AGS segir Grikki þurfa 50 milljarða evra og niðurfellingu skulda til að halda sjó

Grikk­land þarf 50 millj­arða evra til við­bótar næstu þrjú árin og viða­mikla nið­ur­fell­ingu skulda til þess að ná jafn­vægi í hag­kerfið og skapa and­rúm. Þetta segir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) í dag en aðeins þrír dagar eru til stefnu áður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fer fram í Grikk­landi um til­lögur lán­ar­drottna þeirra.

AGS varar jafn­framt við því að skuldir Grikkja séu ósjálf­bærar, og er því ósam­mála leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ins og þykir hafa sent þeim sterk skila­boð með þess­ari yfir­lýs­ingu sinni. Samkvæmt sjóðnum þyrfti Grikk­land að fá 20 ára frest til að byrja að borga skuldir til baka og að loka­greiðslur á neyð­ar­lánum þeirra yrðu ekki borg­aðar fyrr en árið 2055.

Sjóð­ur­inn segir einnig að lík­lega sé nauð­syn­legt að færa lán Grikkja niður um 30% af þjóð­ar­tekjum þeirra.

Þá kemur fram í yfir­lýs­ingu AGS að þetta mat á sjálf­bærni gríska hag­kerf­is­ins hefði ekki verið sam­þykkt af öðrum aðilum máls­ins, sem er í raun við­ur­kenn­ing á því að lán­ar­drottnar Grikkja eru ósam­mála um nauð­syn þess að fella niður skuldir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár