Mjótt á munum í Grikklandi - Ráðherra sker frekar af sér hendina en að kjósa „já“

Skoð­ana­kann­anir í Grikk­landi benda til að afar mjótt sé á munum milli Já- og Nei-stuðn­ings­hreyf­inga í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem hald­inn verður næst­kom­andi sunnu­dag. Jafnvel þótt bæði staðan og samn­ingar við kröfu­hafa hafi breyst frá því Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra boð­aði til atkvæða­greiðsl­unnar, þá munu Grikkir kjósa um hvort þeir vilji ganga að sam­komu­lagi við kröfu­hafa gríska rík­is­ins eftir þrjá daga. Í nýrri skoð­ana­könnun mælist stuðn­ingur við sam­komu­lagið 47 pró­sent. Um 43 pró­sent aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa „nei“ og er stærstur hluti Nei-liða stuðn­ings­fólk Syriza, stjórn­mála­flokks Tsipras. Vikmörk könn­un­ar­innar eru 3,1 pró­sent og því erfitt að túlka með vissu hvor hreyf­ingin nýtur meiri stuðn­ings, þremur dögum fyrir atkvæða­greiðsl­una. Báðar hafa boðað til mik­illa mót­mæla í dag.

Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra í grísku rík­is­stjórn­inni, var harð­orður í við­tali við frétta­stofu Bloomberg í morgun og sagði hann myndi frekar skera af sér hend­ina heldur en að skrifa undir sam­komu­lag við kröfu­hafa sem gerir gríska rík­inu ókleift að end­ur­skipu­leggja skulda­stöð­una. Hann sagð­ist myndu segja af sér ef gríska þjóðin kýs „Já“ í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni.


Mikið er undir á sunnu­dag­inn fyrir rík­is­stjórn Tsipras sem gæti fallið verði sam­þykkt samn­inga við kröfu­hafa nið­ur­staðan. Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­hald­andi veru í evru­sam­starf­inu. Vonir Varoufakis eru þó þær að Grikkir kjósi „nei“ og að Grikk­land haldi evr­unni áfram, að því er hann sagði í við­tal­inu við Bloomberg.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lok­aðir alla vik­una og geta Grikkir ekki tekið hærri fjár­hæð en 60 evrur, ríf­lega átta þús­und krónur, úr hrað­bönkum á dag. Óvissa um fram­haldið hefur leitt til óvenju­legra aðstæðna í land­inu, svo ekki sé meira sagt, þar sem langar biðraðir mynd­ast við hrað­banka og bæði laun­þegar og atvinnu­rek­endur vita ekk­ert um fram­hald mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár