Arion banki fjármagnar sig í norskum krónum

Arion banki lauk í dag skulda­bréfa­út­gáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skulda­bréf fyrir 500 millj­ónir norskra króna til fimm ára. Arion banki greinir frá þessu í dag. Upphæðin jafn­gildir um 8,4 millj­örðum íslenskra króna. Skulda­bréfin bera fljót­andi NIBOR vexti, það eru norskir milli­banka­vextir, að við­bættu 2,95 pró­sent álagi. Hluta höf­uð­stóls­ins og vaxta er skipt í evrur sam­kvæmt skipta­samn­ing sem gerður er sam­tímis. Vaxta­kjörin í evrum eru fljót­andi EURIBOR milli­banka­vextir auk 2,74 pró­sent álags. Fram kemur í til­kynn­ingu að umfram­eft­ir­spurn hafi verið eftir bréf­unum. Skulda­bréfin voru seld til fjár­festa í Noregi, Svíþjóð, Finn­landi, Danmörku og á meg­in­landi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuld­bréf­anna.

Jafn­framt greinir bank­inn frá því að sam­hliða skulda­bréfa­út­gáf­unni nú hefur Arion banki keypt til baka 260 millj­ónir norskra króna af skulda­bréfa­út­gáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 59 millj­ónir, og hefur bank­inn sam­tals keypt NOK 319 millj­ónir til­baka af 500 millj­óna króna útgáf­unni frá árinu 2013. Sú útgáfa var sú fyrsta sem íslenskur banki réðst í erlendis frá árinu 2007.


Þá greiddi Arion banki einnig í dag um 10 millj­arða króna fyrir gjald­daga af víkj­andi láni frá rík­is­sjóði. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bank­inn greiðir fyr­ir­fram­greiðslu af víkj­andi láni, og hefur sam­tals greitt um 20 millj­arða króna af um 30 millj­arða víkj­andi láni. Lánið var veitt í upp­hafi árs 2010 í tengslum við end­ur­fjár­mögnun bank­ans.

Batnandi mynd af fjármögnun

Af 771 millj­arða króna skuldum Arion banka um síð­ustu ára­mót voru um 454 milj­arðar inn­lán, 129 millj­arðar króna sér­tryggð skulda­bréf, 8,5 millj­arðar óverð­tryggð skulda­bréf í norskum krónum, 1,7 millj­arður króna óverð­tryggð skulda­bréf í evrum og 2,1 millj­arður króna. Auk þess skuld­aði Arion banki Seðla­bank­anum 55 millj­arða króna. Með útgáf­unni í dag hefur bank­inn aukið hlut­fall fjár­mögn­unar með útgáfu skulda­bréfa í erlendri mynt auk þess sem hann hefur greitt niður víkj­andi lán rík­is­sjóðs að stærri hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár