Arion banki nær sér í erlenda fjármögnun upp á 45 milljarða króna

Arion banki hefur gefið út og selt skulda­bréf fyrir 300 millj­ónir evra, um 45 millj­arða króna, til "breiðs hóps alþjóða­legra fjár­festa". Í til­kynn­ingu frá bank­anum kemur fram að umfram­eft­ir­spurn í útboð­inu hafi verið rúm­lega tvö­föld, en alls bár­ust til­boð frá um 100 fjár­festum fyrir um 675 millj­ónir evra.

Skulda­bréfin eru til þriggja ára og bera fasta 3,125 pró­sent vexti, og voru seld á kjörum sem jafn­gilda 3,10 pró­sent álagi yfir milli­banka­vexti. Til stendur að nota hluta láns­ins til að greiða niður önnur og óhag­stæð­ari lán og lækka þannig fjár­mögn­un­ar­kostnað bank­ans. Auk þess munu fyr­ir­tæki sem eru í við­skiptum við Arion banka njóta góðs af auknu aðgengi að erlendu lánsfé, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Þetta er fyrsta útgáfa íslensks banka í evrum sem er seld til svona fjár­festa­hóps frá hruni.

Arion Banki samdi á síð­asta ári við alþjóð­legu bank­anna Citi, Deutsche Bank og Nomura um skipu­lagn­ingu funda með evr­ópskum fjár­festum og er útgáfan afleið­ing af þeirri vinnu.

Gáfu út en keyp til baka


Þetta er ekki fyrsta útgáfa Arion banka eftir banka­hrun. Árið 2013 gaf bank­inn út skulda­bréf í norskum krónum, fyrir alls 500 millj­ónir norskra króna, og var þar með fyrsti íslenski bank­inn til að sækja sér erlenda láns­fjár­mögnun frá árinu 2007. Bankinn til­kynnti það í jan­úar síð­ast­liðnum að hann hefði keypt til baka hluta þeirra skulda­bréfa, fyrir alls 59 millj­ónir norskra króna. Þau skulda­bréf voru keypt á verð­inu 102,5 sem sam­svarar 2,79 pró­sent álagi yfir NIBOR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár