Grikkir ræða nýtt tilboð á síðustu stundu - Reynt að hópfjármagna neyðarlánið

Grísk stjórn­völd fara í dag yfir til­boð frá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, einum lán­veit­anda Grikk­lands, þar sem reynt er til þrautar að koma í veg fyrir yfir­vof­andi greiðslu­fall gríska rík­is­ins. Hluti láns Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins til Grikk­lands fellur á gjald­daga síðar í dag en með sam­komu­lagi á síð­ustu stundu yrði Grikkjum kleift að greiða fjár­hæð­ina. Upphæðin sem er á gjald­daga í dag nemur 1,6 millj­örðum evra, eða jafn­virði um 235 millj­arða íslenskra króna. Samkvæmt erlendum fjöl­miðlum, meðal ann­ars Guardian sem fylgist grannt með stöðu mála, þykir mögu­legt að Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, ferð­ist til Brussel í kvöld og fundi um mögu­lega lausn á síð­ustu stundu.

Eins og kunn­ugt er hafn­aði Alexis Tsipras fyrra til­boði kröfu­hafa Grikk­lands og sendi ákvörð­un­ina um sam­þykkt samn­inga í þjóð­ar­at­kvæð­is­greiðslu þann 5. júlí næst­kom­andi. Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna gerði grískum stjórn­völdum það ljóst í gær að atkvæða­greiðslan snérist í raun um áfram­hald­andi aðild Grikkja að evru­sam­starf­inu. Grískir bankar opn­uðu ekki í gær og eru enn lok­aðir almenn­ingi. Einungis er hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum og hafa mynd­ast langar biðraðir við hrað­banka.

Hópfjármagna neyðarlán til Grikklands

Á meðan ráða­menn í Evrópu reyna að leysa úr flók­inni stöðu sem gæti haft í för með sér ófyr­ir­séðar afleið­ingar, þá hefur Breti einn hafið hóp­fjár­mögnun á neyð­ar­láni til Grikk­lands á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Indi­egogo. Hann stefnir að því að safna 1,6 millj­örðum evra. Huffington Post fjallar meðal ann­ars um söfn­un­ina undir fyr­ir­sögn­inni „Gríski neyð­ar­sjóð­ur­inn á Indi­egogo er jafn nið­ur­drep­andi og hann hljómar“. Fyrir þriggja evra fram­lag fæst póst­kort frá for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, prentuð í Grikk­landi, grísku efna­hags­kerfi til góðs. Fyrir sex evrur fæst grískt salat með feta-osti og olívum, fyrir tíu evrur fæst lítil flaska af drykknum Ouzu og fyrir 25 evru fram­lag fæst flaska af grísku víni.


Á hádegi í dag, þriðju­dag, höfðu safn­ast um 103 þús­und evrur sem er ein­ungis brot af upp­hæð­inni sem þarf. Miðað við þann skamma tíma sem er til stefna þykir ólík­legt að lána­greiðsla gríska rík­is­ins verði hóp­fjár­mögnuð af ein­stak­lingum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár