Sendiherrabústaður Íslands í Moskvu var aðsetur nasistaforingja í síðari heimsstyrjöldinni

Íslend­ingar hafa átt í form­legum diplómat­ískum sam­skiptum við Rússa síðan árið 1944 þegar Pétur Bene­dikts­son var skip­aður fyrsti sendi­herra Íslands í Moskvu. Pétur og eft­ir­maður hans í starfi, Helgi P. Briem, höfðu þó ekki fasta búsetu í borg­inni. Það breytt­ist aftur á móti þegar Pétur Thor­steins­son var skip­aður sendi­herra í Moskvu árið 1953 og í hans tíð var húsið að Khlebnyi per­eu­lok 28 fyrst tekið á leigu - en þar hefur sendi­herra­bú­stað­ur­inn verið nær sleitu­laust síðan. Skrif­stofa sendi­ráðs­ins var til að byrja með einnig í sama húsi en færð­ist svo síðar í nýja bygg­ingu við hlið þess.

Húsið að Khleb­enyi per­eu­lok eða „Brauð­götu“ 28 á sér nokkuð merki­lega sögu en götu­heitið sem slíkt mun hafa dregið nafn sitt af þeim fjölda bak­ara sem bjuggu í göt­unni og þjón­uðu keis­urum í Kreml fyrr á tímum. Brauð­gatan brann reyndar til grunna þegar her Napól­e­ons Bónap­arte réðst inn í Moskvu árið 1812 en þremur árum síðar er Brauð­gata 28 skráð byggð í núver­andi mynd.


Rúmum ára­tug áður en Íslend­ingar fluttu inn var Brauð­gata 28 hins vegar aðsetur nas­ista­for­ingj­ans Ernst-August Köstring. Köstring var skip­aður varn­ar­mála­full­trúi Þýska­lands í Moskvu og bjó í hús­inu frá árinu 1935 til árs­ins 1941. Köstring var því í fremstu víg­línu á sann­köll­uðum vendi­punkti í síð­ari heims­styrj­öld­inni, þegar Bar­barossa-áætl­un­inni var hrundið í fram­kvæmd.

Kallaður „Sesar“ af rússnesku leynilögreglunni

Köstring fædd­ist í Serebr­j­anyje Prudy í Rúss­landi árið 1876 og ólst þar upp en for­eldrar hans voru þýskir. Köstring gekk meðal ann­ars í Mik­hailov­sky her­skól­ann í Pét­urs­borg og þjón­aði um tíma í rúss­neska hernum en flutt­ist svo til Þýska­lands áður en fyrri heims­styrj­öldin skall á. Köstring gekk þá í þýska her­inn og komst nokkuð fljótt til met­orða þar.


Upp­gangur Köstring innan þýska hers­ins fór heldur ekki fram­hjá Rússum. Í skýrslu sem rúss­neska alrík­is­lög­reglan, FSB, birti árið 1999 kemur raunar fram að sov­éska leynilög­reglan, sem þá kall­að­ist NKVD GUGB, hafði verið með Köstring á skrá hjá sér löngu áður en hann er skip­aður varn­ar­mála­full­trúi í Moskvu árið 1935. Í skýrslu leynilög­regl­unnar frá árinu 1928 er Köstring til­greindur sem maður sem þurfi að fylgj­ast vel með og honum lýst á eft­ir­far­andi hátt. „Köstring talar full­komna rúss­nesku og mun án nokk­urs vafa reyna að vinna sér traust innan Rauða hers­ins þegar fram líða stundir. Hann kann að virka fremur frjáls­lyndur á yfir­borð­inu en undir niðri er hann gríð­ar­lega slung­inn og reyndur og mun gera allt til þess að kom­ast yfir hern­að­ar­lega mik­il­vægar upp­lýs­ingar,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.


Fljót­lega eftir að Köstring tók til starfa í Moskvu ákvað sov­éska leynilög­reglan því að bæta veru­lega við eft­ir­litið með honum. Leynilög­reglan not­aði dul­nafnið „Sesar“ þegar Köstring var til umfjöll­unar en það kann að vera til merkis um hversu stór fiskur hann var á þeim tíma og hversu mikil ógn var talin stafa af honum.

[caption id="attachment_32665" align="alignnone" width="800"] Ernst-August Köstring (til hægri) ásamt Hans Krebs, sem var skip­aður aðstoð­ar­maður varn­ar­mála­full­trú­ans í Mosvku í októ­ber árið 1940. Myndin er tekin í jan­úar árið 1941 en óvíst er hvort hún sé tekin á Brauð­götu 28. (Bundesarchiv/O.Ang.)[/caption]

Leynigöng og hlerunarbúnaður á Brauðgötu 28


Köstring var almennt við­ur­kenndur sem helsti sér­fræð­ingur nas­ista um Rauða her­inn. Eftir að hann flutti svo inn á Brauð­götu 28 má segja að hann hafi notað hvert tæki­færi til að bæta við þekk­ingu sína um hern­að­ar­mátt Sov­ét­ríkj­anna. Samkvæmt sov­ésku leyni­þjón­ust­unni var Köstring dug­legur að nýta sér diplómat­íska frið­helgi sína til njósn­a­starfa og á ferða­lögum sínum um Sov­ét­ríkin skráði hann niður hern­að­ar­lega mik­il­vægar upp­lýs­ingar, s.s. varð­andi stað­setn­ingar á hern­að­ar­bygg­ingum, virkj­unum, vegum og brúm.


Til að stemma stigu við njósnum Köstr­ings ákvað sov­éska leynilög­reglan því að snúa vörn í sókn snemma árs 1941. Kvöld eitt á meðan Köstring var á ball­et­sýn­ingu í Bolshoi-leik­hús­inu braust leynilög­reglan inn í Brauð­götu 28 og náði að mynda þar leyni­leg gögn og það sem reynd­ist mik­il­væg­ara, að koma fyrir hler­un­ar­bún­aði á skrif­stofu Köstr­ings. Þannig voru sumar upp­lýs­ingar þegar búnar að ber­ast til eyrna ráða­manna í höf­uð­stöðvum sov­ésku leynilög­regl­unnar við Lubyanka-torg í Moskvu áður en þær komust alla til Berlínar.


Sögu­sagnir herma reyndar að leynilög­reglan hafi við inn­brotið not­ast við gömul leyni­göng sem munu hafa legið á milli Brauð­götu 28 og nær­liggj­andi húss í næstu götu, nánar til­tekið á Ska­tertniy per­eu­lok 25.

[caption id="attachment_32666" align="alignnone" width="1000"] Höf­uð­stöðvar Alrík­is­lög­reglu Rúss­neska Sam­bands­ríks­ins, FSB, við Lubyanka-torg í Mosvku. Á tímum Sov­ét­ríkj­anna voru leyni­þjón­ustu­stofn­an­irnar NKVD og siðar KGB einnig með höf­uð­stöðvar sínar í sömu bygg­ingu.[/caption]

Á móti Barbarossa-áætluninni?


Þjóð­verjar hófu inn­rás inn í Sov­ét­ríkin þann 22. júní árið 1941 en sú ákvörðun átti eftir að reyn­ast nas­istum dýr­keypt. Köstring varð eftir í Moskvu ásamt öllu helsta starfs­fólki sendi­ráðs Þjóð­verja í borg­inni en konur, börn og lágt settir starfs­menn höfðu verið sendir heim til Þýska­lands í vik­unni áður. Köstring var fyrst um sinn haldið í „stofu­fang­elsi“ af Sov­ét­mönnum í Brauð­götu 28 áður en hann var fluttur til borg­ar­inn Kostroma tveimur dögum síðar. Köstring var svo fluttur til Tyrk­lands 13. júlí þaðan sem hann og kollegar hans fóru svo aftur til Þýska­lands í fanga­skiptum fyrir starfs­menn sendi­ráðs Sov­ét­manna í Berlín.


Tvennum sögum fer af því hvaða skoðun Köstring hafði á Bar­barossa-áætl­un­inni svoköll­uðu. Sumar heim­ildir greina frá því að Köstring hafi fallið í sömu gryfju og aðrir nas­istar og stór­lega van­metið varn­ar­mátt og þraut­seigju Sov­ét­manna og reiknað með auð­veldum sigri. Í því sam­hengi er sov­ésku leyni­þjón­ust­unni oft hrósað fyrir að hafa náð að halda mik­il­vægum upp­lýs­ingum frá mönnum á borð við Köstring og oft afvega­leitt þá með því að mata þá vís­vit­andi af röngum upp­lýs­ingum.


Á meðan aðrar heim­ildir nafn­greina Köstring sér­stak­lega og segja hann hafa talað gegn inn­rás inn í Sov­ét­ríkin og varað Þjóð­verja sér­stak­lega við því að van­meta ekki styrk Rauða hers­ins. Banda­ríski blaða­mað­ur­inn Henry Shapiro, sem var frétta­rit­ari fyrir United Press og fleiri frétta­veitur í Moskvu á árunum 1933-1973, full­yrðir meðal ann­ars að Köstring hafi stað­fest í sam­tali við sig að hann hafi reynt að tala ráða­menn í Berlín af Bar­barossa-áætl­un­inni. Banda­ríski rit­höf­und­ur­inn og blaða­mað­ur­inn Edgar Snow gengur reyndar lengra og segir að Köstring hafi brostið í grát í sam­tali við erlenda blaða­menn stuttu eftir að Þjóð­verjar hófu inn­rás­ina inn í Sov­ét­ríkin og sagt: „Nú er Þýska­land búið að vera.“

Nürnberg-réttarhöldin og bókaútgáfa

Her­þjón­ustu Köstring í þýska hernum var þó hvergi nærri lokið því hann átti meðal ann­ars eftir að fá það verk­efni frá árinu 1942 að skipu­leggja og þjálfa „útlend­inga­her­sveit“ Þjóð­verja með her­mönnum frá Armeníu, Georgíu og frum­byggjum Kákasus til að berj­ast á aust­ur­víg­stöðvum.


Köstring var svo á meðal þýskra her­manna til að gef­ast upp fyrir banda­ríska hernum í Bad Aibling í Þýska­landi 4. maí árið 1945. Ári síðar stóð reyndar til að Köstring yrði kall­aður til sem vitni í hinum frægu Nürnberg-rétt­ar­höldum að beiðni lög­manns Joachim von Ribbentrop en þeirri beiðni var að lokum hafnað að beiðni Sov­ét­manna.


Köstring var í varð­haldi hjá Banda­ríkja­mönnum til árs­ins 1947, þegar hann var lát­inn laus. Ári síðar kom út bókin The Peoples of the Soviet Union sem Köstring var sam­höf­undur að en Banda­ríkja­her sá um að gefa bók­ina út. Þar lýsir Köstring meðal ann­ars sam­skiptum sínum við Sov­ét­menn á meðan hann bjó á Brauð­götu 28.


Höfundur er sagn­fræð­ingur og mark­aðs­fræð­ingur, búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár