Lélegir kennarar í sænskum menntaskólum

Fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar í Svíþjóð voru mennta­mál í brennid­epli enda hefur árangur sænskra nem­enda versnað mikið sam­kvæmt alþjóð­legu PISA-könn­un­inni. Hægri stjórnin sem féll eftir kosn­ing­arnar í fyrra jók einka­rekstur í mennta­kerf­inu og breytti ein­kunna­kerf­inu sem virð­ist ekki hafa fallið í kramið hjá nem­endum.

Nú fá nem­endur ein­kunn á bil­inu A-F og virð­ist vera sem mörgum finn­ist nýja kerfið ógegn­sætt og flókið. Nýlega birt­ist svo könnun þar sem í ljós kom að sænskir mennta­skóla­nemar eru væg­ast sagt ósáttir við þá menntun sem þeir fá og umgjörð­ina sjálfa.

Annar hver nemandi áhugalaus um námið


Könnunin var unnin á vegum Kenn­ara­sam­bands­ins og sænskra nem­enda­fé­laga en rætt var við eitt þús­und nem­endur á síð­asta ári í fram­halds­skóla og um eitt þús­und kenn­ara. 53 pró­sent nem­enda sögðu að þau hefðu lít­inn áhuga á nám­inu og fjórði hver nem­andi hefur íhugað að hætta námi.

Þessar tölur virð­ast ekki koma neinum á óvart því áhugi nem­enda minnkar jafnt og þétt frá fimmta bekk grunn­skól­ans og því lík­legt að sama þróun haldi áfram upp í mennta­skóla. Hins vegar hafa kenn­arar og nem­endur mjög ólíkar hug­myndir um þann und­ir­bún­ing sem nem­endur fá áður en þeir hefja nám í fram­halds­skóla. Til dæmis telja 70 pró­sent nem­enda að þeir fái nægi­lega góðan und­ir­bún­ing í grunn­skóla fyrir frekara nám en aðeins 35 pró­sent kenn­ara telja að svo sé. Kennarar segja einnig að veru­lega skorti á leið­sögn í grunn­skólum þegar kemur að vali á frekara námi og hvað þurfi til að ná góðum árangri.

Hægri stjórnin gerði þá breyt­ingu á fram­halds­skólum að nú er meiri aðskiln­aður milli bók­legs og verk­legs náms. Nemendur þurfa því snemma að ákveða hvert þeir stefna enda veitir verk­nám ekki sjálf­krafa rétt til háskóla­náms. Þetta hefur meðal ann­ars orsakað það að sífellt færri sækja um verk­nám og áber­andi fleiri nem­endur í verk­námi telja að þeir hafi valið ranga leið.

Kenna lélegum kennurum um áhugaleysið


Sænska dag­blaðið tók við­tal við nokkra nem­endur til þess að kom­ast að því hvers vegna áhuga­leysi er svo útbreytt meðal sænskra nem­enda. Ekki stóð á svari því þeir voru sam­mála um að ástæð­una mætti rekja til lélegra kenn­ara. Ein þeirra sagði að hún hefði ein­fald­lega misst trúna á kenn­ar­ana. „Ég er viss um að það eru margir góðir kenn­arar þarna úti, en þeir hafa hins vegar ekki nógu mik­inn tíma. Það er svo mikil skrifinnska að þeir hafa ekki tíma til að skipu­leggja kennsl­una. Ef þeir ættu að gera það þyrftu það að vera óborgað fyrir utan hefð­bund­inn vinnu­tíma.“

Undir þetta tekur Bo Jansson frá sænska Kenn­ara­sam­band­inu. Hann segir að grípa þurfi til mark­vissra aðgerða til að breyta vinnu­um­hverfi kenn­ara til að þeir geti ein­beitt sér að því sem þeir eigi raun­veru­lega að gera – kenna nem­endum. Hann bendir á að allir virð­ist sam­mála um að fjölga þurfi mennt­uðum kenn­urum í skólum og að til þess að það megi verða þurfi að hækka launin. Hins vegar ger­ist ekki neitt þótt stjórn­mála­menn tali mikið um vanda­málið.

Í annarri könnun sem gerð var meðal mennta­skóla­kenn­ara svör­uðu átta af hverjum tíu að þeir hefðu ekki nægan tíma til að und­ir­búa og fylgja eftir kennslu. Þrátt fyrir að nem­endur reki áhuga­leysið til kenn­ara er ekki þar með sagt að þeir hafi rétt fyrir sér. Tækni­þróun og afþrey­ing­ar­menn­ing nútím­ans gerir það að verkum að haga þarf kennslu með öðrum hætti og ný tæki skapa bæði tæki­færi og vanda­mál.

Íhuga að gera sumarskóla að skyldu


Slakur árangur nem­enda hefur þvingað stjórn­mála­menn og skóla­yf­ir­völd til að leita óhefð­bund­inna leiða til að bæta árangur. Hingað til hafa grunn­skóla­nemar, sem falla í ein­hverju nám­skeiði, getað farið í sum­ar­skóla til að bæta árang­ur­inn og í sumar verður mennta­skóla­nemum boðið upp á sama úrræði. Áhugi nem­enda á sum­ar­skóla hefur hins vegar verið lít­ill og aðeins þriðj­ungur þess fjár sem var úthlutað í fyrra til mála­flokks­ins var nýttur.

Þess vegna hefur þeim mögu­leika verið velt upp að sum­ar­skóli verði skylda fyrir nem­endur sem ná ekki lág­marks­ár­angri yfir vet­ur­inn. Á hinum end­anum eru svo þeir nem­endur sem telja sig ekki fá örvun eða nægj­an­lega erfið verk­efni í skól­anum. Um 5 pró­sent barna telj­ast í hópi snjöll­ustu nem­end­anna en hættan er sú að þeir lendi utan­garðs í kerf­inu. Stundum eru þeir taldir óáhuga­samir og erf­iðir og dæmi eru um rangar adhd grein­ingar á þessum nem­endum. Í stórum bekkjum er hins vegar hæg­ara sagt en gert að útbúa mis­mun­andi kennslu­efni fyrir nem­endur og sjá til þess að hver og einn fái við­un­andi örvun.

Svíar standa frammi fyrir ýmsum vanda­málum í mennta­kerf­inu og óljóst hvernig þeir ætla að leysa þau. Mið­stýr­ing og eft­ir­lit með skólum hefur í för með sér tíma­freka skýrslu­gerð sem virð­ist koma niður á kennslu. Sú lausn sem kenn­arar tala fyrir felst í fleiri kenn­urum og auknu fé til mála­flokks­ins. Aðrir benda á að um leið og skól­unum sé gefið aukið frelsi til að skipu­leggja nám minnki þörfin á skriffin­sku. Þessi tvö sjón­ar­mið takast nú á um fram­tíð sænska skóla­kerf­is­ins og verður áhuga­vert að sjá hvaða áherslur núver­andi stjórn undir for­ystu jafn­að­ar­manna mun hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár