Ragna: Næstu ákvarðanir eru pólitískar - Ekki litið til Keflavíkur

„Núna liggur bolt­inn hjá aðilum sam­komu­lags­ins. Við höfum skilað af okkur, þannig að næstu ákvarð­anir eru í raun póli­tískar. Þessi gögn ættu að gera það að verkum að hægt er að taka ákvarð­anir,“ sagði Ragna Árna­dóttir í sam­tali við Kjarnann að loknum blaða­manna­fundi í dag. Á fund­inum var skýrsla Rögnu­nefnd­ar­innar svoköll­uðu kynnt, um kosti og kalla flug­vall­ar­stæða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Er það mat stýri­hóps­ins að Hvassa­hraun sé álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir flug­völl í Reykja­vík.

Ragna segir vinnu nefnd­ar­innar nú að fullu lokið og að ekk­ert sé að vand­bún­aði að taka næstu skref í mál­inu. „Við fengum þetta verk­efni, að skoða flug­vall­ar­kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu utan Vatns­mýrar. Við bendum á þessa kosti og segjum: Það er eng­inn galla­laus. Þeir hafa allir sína kosti og galla, en ef það er horft til þró­un­ar­mögu­leika þá er Hvassa­hraun álit­leg­astur.


„Að það náist sátt um það að tryggja rekstr­ar­ör­yggi Vatns­mýr­ar­flug­vallar og að þessi mál verði skoðuð áfram á grund­velli okkar nið­ur­staðna,“ segir Ragna, aðspurð um hvað hún vilji sem for­maður stýri­hóps­ins að ger­ist næst í mál­inu. Í hóp­inum sátu auk Rögnu þau Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir fyrir hönd rík­is­ins, Matthías Svein­björns­son fyrir hönd Icelandair og Dagur B. Egg­erts­son fyrir Reykja­vík­ur­borg. Verk­efn­is­stjóri var Þor­steinn R. Her­manns­son hjá Mannviti.

Keflavík ekki skoðuð

Nefndin kann­aði fjögur ný flug­vall­ar­stæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og segir Ragna að vinnan hafi verið bundin við höf­uð­borg­ina. Þess vegna hafi flutn­ingur inn­an­lands­flugs til Kefla­víkur ekki verið skoðað. „Það var ekki hluti af okkar vinnu,“ segir Ragna en sá kostur hefur oft verið nefndur í umræð­unni um umdeildan flug­völl­inn í Vatns­mýri og fram­tíð hans.


Flug­vall­ar­stæðin sem voru skoðuð eru við Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Hvassa­hraun og Löngu­sker auk þess sem breytt útfærsla á legu flug­brauta í Vatns­mýri var metin. Áætlaður stofn­kostn­aður yrði í öllum til­vikum á bil­inu 22 til 25 millj­arðar króna, nema á Löngu­skerjum þar sem hann er met­inn um 37 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár