Birta fyrstu tölur af fasteignamarkaði frá því fyrir verkfall

Alls voru 86 kaup­samn­ingar þing­lýstir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í vik­unni 12. til 18. júní. Með­al­upp­hæð samn­ings var 38,4 millj­ónir króna en 65 samn­ingar voru um eignir í fjöl­býli, 15 samn­ingar voru um sér­býli og sex samn­ingar voru um ann­ars konar eig­inir en íbúð­ar­hús­næði. Heild­ar­velta var alls 3.304 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram á vef­síðu Þjóð­skrár Íslands, sem undir venju­legum kring­um­stæðum birtir viku­lega upp­lýs­ingar um veltu og fjölda við­skipta á fast­eign­ar­mark­aði. Fréttin í dag um veltu og við­skipti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er aftur á móti sú fyrsta í tíu vikur. Síðast birt­ust upp­lýs­ingar um fast­eigna­mark­að­inn í höf­uð­borg­inni fyrir vik­una 3. til 9. apríl. Ástæðan er verk­fall lög­fræð­inga hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Verk­fall­inu lauk þann 13. júní, þegar rík­is­stjórnin sam­þykkti lög sem stöðv­uðu verk­falls­að­gerðir aðild­ar­fé­laga BHM með laga­setn­ingu. Engum skjölum um fast­eigna­við­skipti hefur verið þing­lýst hjá sýslu­manni frá því verk­fall lög­fræð­inga hófst í fyrri hluta apr­íl­mán­aðar. Nú þegar þing­lýs­ing er hafin á ný má gera ráð fyrir að áhrifa þess gæti í viku­legu yfir­litið Þjóð­skrár um veltu og við­skipti á fast­eigna­mark­aði. Því mun aftur fást mynd af þróun fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem ekki hefur verið aðgengi­leg í á þriðja mánuð.


Á föstu­dag­inn síð­asta var stefna Banda­lags háskóla­manna, BHM, gegn rík­inu þing­fest í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. BHM telur laga­setn­ingu rík­is­ins gegn verk­falls­að­gerð­unum fela í sér ólög­mætt inn­grip í starf­semi stétt­ar­fé­lags­ins. Málið hlýtur flýti­með­ferð og verður tekið fyrir þann 3. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár