Mál BHM gegn ríkinu flutt 3. júlí

Mál BHM gegn íslenska rík­inu verður flutt þann 3. júlí næst­kom­andi. Það var þing­fest í dag fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur en málið fær flýti­með­ferð fyrir dóm­stólum. BHM telur að þau lög sem stjórn­völd settu á verk­falls­að­gerðir stétt­ar­fé­laga BHM hafi verið ólög­mæt. Í stefnu BHM gegn íslenska rík­inu segir að engin rök hafi verið færð fram sem sýni fram á neyð­ar­stöðu vegna verk­falls­að­gerða og að svo virð­ist sem geð­þótta­á­kvörðun hafi ráðið því að lög hafi verið sett sem banna verk­föll stétt­ar­fé­laga BHM.

Kjara­deilu aðild­ar­fé­laga BHM var vísað til rík­is­sátta­semj­ara í lok mars síð­ast­liðnum. Haldnir voru 24 fundir sem báru ekki árangur. Þann 13. júní síð­ast­lið­inn voru sam­þykkt lög á Alþingi sem bönn­uðu verk­föll Félags geisla­fræð­inga, Félags líf­einda­fræð­inga, Ljós­mæðra­fé­lagss Íslands, Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga, Stétt­ar­fé­lags lög­fræð­inga hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stétt­ar­fé­lags háskóla­manna á mat­væla- og nær­inga­sviði, Dýra­lækn­inga­fé­lags Íslands hjá Mat­væla­stofnun og Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins hjá Fjár­sýslu rík­is­ins. Þegar lög voru sett höfðu verk­falls­að­gerðir staðið yfir í á þriðja mánuð. „Að mati stefn­anda felur setn­ing laga 31/2015 í sér ólög­mætt inn­grip í starf­semi frjálsra, lög­legra félags­sam­taka og leitar því full­tingis dóm­stóla til að fá hlut félaga sinn réttan,“ segir í stefnu BHM.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár