Mikil skuldalækkun ríkisins verður vandmeðfarin

Takist að greiða niður skuldir með því fé sem fæst í tengslum við losun gjald­eyr­is­hafta, þá munu vaxta­gjöld rík­is­sjóðs lækka veru­lega. Ef skuldir verða nið­ur­greiddar um 640 millj­arða króna þá gæti það leitt til um 35 millj­arða árlegrar lækk­unar á vaxta­gjöldum rík­is­sjóðs. Miklar skulda­lækk­anir sem þessar eru þó vand­með­farnar, að mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. „Gæta þarf þess sér­stak­lega að ráð­stöfun þess­ara fjár­muna hafi ekki óæski­leg áhrif á pen­inga­magn í umferð eða önnur áhrif sem gætui stuðlað að þenslu og dregið úr verð­stöð­ug­leika,“ segir í hag­sjá hag­fræði­deldar Lands­bank­ans.

Farið er yfir skulda­stöðu rík­is­sjóðs en heild­ar­skuldir við árs­lok 2014 námu um 1.485 millj­örðum króna. Til við­bótar er ótalin 430 millj­arða króna skuld­bind­ing rík­is­sjóðs við B-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, LSR. Að þeim með­töldum nema skuldir rík­is­sjóðs um 1915 millj­örðum króna sem sam­svarar um 96 pró­sent af lands­fram­leiðslu Íslands á síð­asta ári. Af þessum skuldum voru 1.500 millj­arðar í íslenskum krónum en and­virði 415 millj­arða króna í erlendri mynt. Af inn­lendum skuldum voru 240 millj­arðar skulda í rík­is­bréfum í eigu líf­eyr­is­sjóða. Að með­taldri 430 millj­arða skuld­bind­ingu gagn­vart LSR er eign líf­eyr­is­sjóð­anna af skuldum rík­is­ins því um 63 pró­sent eða 34 pró­sent heild­ar­skulda.


Fleiri hafa bent á mögu­leg áhrif nið­ur­greiðslu rík­is­skulda í tengslum við losun hafta. Fjár­mála­eft­ir­litið fjall­aði sér­stak­lega um mögu­leg áhrif á fjár­festa, þar á meðal líf­eyr­is­sjóði, í umsögn sinni við frum­varp fjár­mála­ráð­herra um stöð­ug­leika­skatt. Kjarninn fjall­aði um umsögn eft­ir­lits­ins í síð­ustu viku. Að mati FME þarf að skoða sér­stak­lega hvort bregð­ast þurfi við ýmsum hlið­ar­á­hrifum vegna stöð­ug­leika­skatts- eða fram­lags. Hlið­ar­á­hrif gætu orðið nei­kvæð hvað varðar fjár­fest­ing­ar­mögu­leika fjár­festa vegna lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs og til­heyr­andi áhrifum á fram­boð rík­is­skulda­bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár