FME: Nauðasamningar mun ákjósanlegri en stöðugleikaskattur

Flest bendir til að nauða­samn­ings­lausn með stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa föllnu bank­anna sé mun ákjós­an­legri leið frá sjón­ar­miði fjár­mála­stöð­ug­leika, heldur en álagn­ing stöð­ug­leika­skatts. Er þetta mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem skilað hefur umsögn til Alþingis um frum­varp til laga um stöð­ug­leika­skatt. Tekið er fram að nið­ur­staða eft­ir­lits­ins liggi ekki end­an­lega fyrir, en það vinnur nú í sam­starfi við Seðla­banka Íslands að mati á áhrifum þeirra til­lagna sem lagðar hafa verið fram um losun fjár­magns­hafta á ein­stök fjár­mála­fyr­ir­tæki og og fjár­mála­mark­að­inn í heild. Að mati FME er nauða­samn­ings­lausn betri en stöð­ug­leika­skattur „vegna þess að stöð­ug­leika­fram­lag tekur mið af aðstæðum í hverju búi fyrir sig og er háð nokkrum óorðnum og ófyr­ir­sjá­an­legum atburðum“.

Tekið er fram í umsögn FME að þrátt fyrir að til­lögur stærstu kröfu­hafa þriggja stærstu slita­bú­anna um nauða­samn­inga liggi þegar fyrir, og byggja á sam­ráði við stjórn­völd um nauð­syn­leg stöð­ug­leika­skil­yrði, þá séu engu að síður sterk rök fyrir því að frum­varpið um stöð­ug­leika­skatt verði að lögum. „Hvorki getur talist öruggt að nauða­samn­ingar fáist sam­þykktir af auknum meiri­hluta kröfu­hafa né af hálfu stjórn­valda. Auk þess liggur ekki fyrir að sam­bær­legir nauða­samn­ingar séu í und­ir­bún­ingi fyrir önnur slitabú en stóru bank­anna þriggja.“


Tvö frum­vörp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem snúa að losun fjár­magns­hafta voru lögð fram á Alþingi þann 8. júní síð­ast­lið­inn, um stöð­ug­leika­skatt ann­ars vegar og nauða­samn­inga hins vegar. Frum­vörpin voru lögð fram í kjöl­far þess að áætlun stjórn­valda var kynnt á blaða­manna­fundi í Hörpu. Frestur til að senda Alþingi umsögn vegna laga­breyt­ing­anna rann út í dag.

Lögfesti ráðstöfun stöðugleikaframlags

FME telur það jafn­framt jákvætt að í frum­varp­inu sé til­greint að ráð­stöfun stöð­ug­leika­skatts skuli sam­rým­ast mark­miðum um efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika. Ástæða sé til að skoða hvort unnt sé að skil­greina sam­bæri­legt mark­mið um ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­lags. „Einnig er jákvætt að frum­varpið, og áætlun stjórn­valda um losun hafta í heild sinni, geri ráð fyrir frjálsri sölu á óbeinum eign­ar­hlutum slita­bú­anna í starf­andi við­skipta­bönkum sam­kvæmt almennum reglum. Það verður svo hlut­verk Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meta hvort nýir eig­endur telj­ist hæfir til að fara með virka eign­ar­hluti á grund­velli laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki nr. 161/2002,“ segir í umsögn FME.

Niðurgreiðsla skulda hefur áhrif á fjárfesta

„Skoða þarf þó sér­stak­lega hvort nauð­syn­legt sé að bregð­ast við ýmsum hlið­ar­á­hrifum vegna stöð­ug­leika­skatts eða stöð­ug­leika­fram­lags,“ segir í umsögn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, und­ir­ritað af Jóni Þór Sturlu­syni, aðstoð­ar­for­stjóra FME, og Lilju Rut Krist­ó­fers­dóttur, fram­kvæmda­stjóra grein­inga FME. Hlið­ar­á­hrif gætu orðið nei­kvæð hvað varðar fjár­fest­inga­mögu­leika fjár­festa, þar með talið líf­eyr­is­sjóða, vegna lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs og til­heyr­andi áhrifum á fram­boð rík­is­tryggðra skulda­bréfa. „í Ijósi þess að inn­lendar skuldir rík­is­sjóðs nema um 1.100 mö.kr. (þaraf eru mark­aðs­skulda­bréf um 880 ma.kr.) á meðan áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs af stöð­ug­leika­skatti geta sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins orðið 845 ma.kr. má Ijóst vera að ráð­stöfun stöð­ug­leika­skatts (eða stöð­ug­leika­fram­lags) til lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs hefur umtals­verð áhrif á fram­boð af rík­is­tryggðum skulda­bréfum. Það gæti aftur haft nei­kvæð áhrif á fjár­fest­ing­ar­mögu­leika fjár­festa, þ.m.t. líf­eyr­is­sjóða, nema heim­ildir til ann­arra fjár­fest­inga verð' auknar stór­lega, og fram­boð veð­hæfra eigna í við­skiptum fjár­mála­fyr­ir­tækja við Seðla­banka íslands,“ segir í umsögn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár