Pabbi þarf að keyra frestast um viku af því að pabbi þarf að mála

Það til­kynn­ist hér með að nýjasti þátt­ur­inn í hlað­varps­þátta­röð­inni Pabbi þarf að keyra frest­ast um viku. Baggalút­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Guð­mundur Pálsson hefur und­an­farnar 32 vikur fært ferða­sögu fjöl­skyld­unnar um Evrópu (og Egypta­land) til heim­ilda í Hlað­varpi Kjarnans.

Fjöl­skyldan snéri aftur heim til Íslands á mánu­dag­inn, eftir átta mán­aða ferða­lag um þjóð­vegi álf­unnar á fjöl­skyldu­bílnum sem þau fluttu með sér yfir á meg­in­landið frá Vesturbæ Reykja­víkur. Nú er fjöl­skyldan að koma sér aftur fyrir á heim­ili sínu, og sökum anna bað Gummi Páls um tíma­bundið frí frá hlað­varps­þátta­gerð­inni.

„Það er bara nóg að gera. Miklu meira en ég hélt og auð­vitað miklu meira en hefur verið síðan í haust. Svona er bara að koma heim eftir langa fjar­veru,“ segir Gummi í sam­tali við Kjarnann. „Þannig að Pabbi þarf að keyra er eig­in­lega „Pabbi þarf að mála íbúð­ina og koma sér fyrir og ganga frá lausum endum“ - þessa dag­ana. Ég fæ frí í þetta eina skipti og svo klárum við dæmið næstu tvo laug­ar­daga.“

Því er von á brak­andi ferskum og nýjum hlað­varps­þætti frá Gumma Páls næsta laug­ar­dag, en hann verður sá 33. í röð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pabbi þarf að keyra

FréttirPabbi þarf að keyra

Guð­mundur Pálsson hættir á RÚV og gengur til liðs við Kjarnann

Guð­mundur Pálsson, fjöl­miðla­maður og Baggalútur, sagði nýverið upp störfum hjá RÚV og hélt af landi brott ásamt fjöl­skyldu sinni, og ferð­ast nú um Evrópu á fjöl­skyldu­bílnum. Guð­mundur var einn umsjón­ar­manna Morg­un­út­varps­ins á Rás 2 um ára­bil, en síð­ustu mán­uði hefur hann unnið að dag­skrár­gerð fyrir sjón­varps­þátt­inn Landann á RÚV. Guð­mundur ferð­ast nú um þjóð­vegi Evrópu, ásamt eig­in­konu sinni og fjórum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár