Guðmundur Pálsson hættir á RÚV og gengur til liðs við Kjarnann

Guð­mundur Pálsson, fjöl­miðla­maður og Baggalútur, sagði nýverið upp störfum hjá RÚV og hélt af landi brott ásamt fjöl­skyldu sinni, og ferð­ast nú um Evrópu á fjöl­skyldu­bílnum. Guð­mundur var einn umsjón­ar­manna Morg­un­út­varps­ins á Rás 2 um ára­bil, en síð­ustu mán­uði hefur hann unnið að dag­skrár­gerð fyrir sjón­varps­þátt­inn Landann á RÚV.

Guð­mundur ferð­ast nú um þjóð­vegi Evrópu, ásamt eig­in­konu sinni og fjórum börnum. Hann mun halda úti viku­legum þáttum í Hlað­varpi Kjarnans, þar sem hann mun færa ferða­sögu fjöl­skyld­unnar til heim­ilda, en þætt­irnir hafa hlotið nafnið: "Pabbi þarf að keyra." Í sam­tali við Kjarnann segir Guð­mundur: "Við vorum bara orðin þreytt á mik­illi vinnu og hinu dag­lega arga­þrasi á Íslandi, og þurftum á til­breyt­ingu að halda. Við erum sann­færð um að ferðin muni bara styrkja fjöl­skyldu­böndin, og varla er hægt að hugsa sér betri fjár­fest­ingu en það."

[caption id="attachment_11425" align="alignnone" width="960"] Guð­mundur Pálsson og fjöl­skylda við fjöl­skyldu­bíl­inn í Lúx­em­borg, en myndin var tekin á sunnu­dag­inn.[/caption]

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, segir Guðmund vera mik­inn feng fyrir fjöl­miðla­fyr­ir­tækið. "Við erum í skýj­unum yfir að hafa fengið Guðmund Pálsson til liðs við okkur. Hann er drengur góður, mik­ill fag­maður, og ég er viss um að þjóðin hefur áhuga á að heyra hvað hann og fjöl­skylda hans eru að bauka á meg­in­land­inu. Hann hefur fyrir löngu unnið hug og hjörtu þjóð­ar­innar með Baggalúti, og fág­aðri fram­komu á öldum ljós­vakans á und­an­förnum árum."

Fyrsti þátt­ur­inn um ferða­lag Gumma Páls og fjöl­skyldu verður aðgengi­legur í Hlað­varpi Kjarnans á morgun klukkan 13:00, og verður fram­vegis viku­lega á dag­skrá á sama tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pabbi þarf að keyra

FréttirPabbi þarf að keyra

Pabbi þarf að keyra frest­ast um viku af því að pabbi þarf að mála

Það til­kynn­ist hér með að nýjasti þátt­ur­inn í hlað­varps­þátta­röð­inni Pabbi þarf að keyra frest­ast um viku. Baggalút­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Guð­mundur Pálsson hefur und­an­farnar 32 vikur fært ferða­sögu fjöl­skyld­unnar um Evrópu (og Egypta­land) til heim­ilda í Hlað­varpi Kjarnans. Fjöl­skyldan snéri aftur heim til Íslands á mánu­dag­inn, eftir átta mán­aða ferða­lag um þjóð­vegi álf­unnar á fjöl­skyldu­bílnum sem þau fluttu með sér yfir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár