Stjórnarmaður hjá NRA kennir presti um fjöldamorðið í Charleston

Stjórn­ar­maður hjá Lands­sam­tökum skot­vopna­eig­enda í Banda­ríkj­unum (NRA) kennir afstöðu prests­ins í kirkj­unni í Charlestone til almennrar byssu­eignar, um fjöldamorðið sem átti sér þar stað á mið­viku­dag­inn. Margir helstu frétta­miðlar vestan hafs greina frá mál­inu, þeirra á meðal Quartz.

Hinn 21 árs Dylann Storm Roof hóf fyr­ir­vara­laust skot­hríð í kirkj­unni og myrti níu manns, en allir þeir sem féllu voru svartir og er ódæðið rakið til kyn­þátta­hat­urs. Samkvæmt frá­sögn vitna sagði Roof er hann end­ur­hlóð byss­una sína meðan á hryðju­verk­inu stóð: „Ég verð að gera þetta. Þið nauðgið kon­unum okkar og eruð að taka yfir landið okkar. Og þið verðið að fara.“

Segir prestinn eiga sinn þátt í sökinni


Roof er í haldi lög­reglu og á yfir höfði sér dauða­refs­ingu verði hann fund­inn sekur um hroða­verkið. Byssan sem Roof not­aði til að fremja fjöldamorðið hafði hann keypt sér fyrir afmæl­is­pen­inga frá fjöl­skyldu hans.Á meðal hinna myrtu var Clementa C. Pinckney, sem var prestur kirkj­unnar umræddu og öld­unga­deild­ar­þing­maður fyrir ríki Suður-Karólínu.

NRA hafa ekki sent frá sér neina form­lega yfir­lýs­ingu vegna skotárás­ar­innar, en stjórn­ar­maður hjá sam­tök­unum, Charles Cotton, lét málið til sín taka á spjall­þræði um skot­vopn eftir voða­verkið. Þar sagði hann um prest­inn sem var þá nýlát­inn: „Hann kaus gegn vopna­burði. Átta sókn­ar­börn hans væru mögu­lega enn á lífi ef hann hefði ekki verið á móti því að leyfa fólki að hafa með sér skot­vopn til kirkju. Saklaust fólk lét lífið vegna póli­tískra skoð­ana hans.“

Pinckney hafði í tíð sinni sem öld­unga­deild­ar­þing­maður talað fyrir strang­ari laga­setn­ingum er varða hert­ari skil­yrði til byssu­kaupa til handa almenn­ingi. Þá kaus hann gegn laga­frum­varpi í Suður-Karólínu sem kvað á um leyfi til að bera vopn inn­an­klæða á veit­inga­stöðum sem veita áfengi. Samkvæmt lögum rík­is­ins er óheim­ilt að taka með sér skot­vopn til kirkju.

Kunnuglegur málflutningur


Nokkrum klukku­stundum áður en Cotton lét ummælin falla á áður­nefndum spjall­þræði hafði Barack Obama Banda­ríkja­for­seti brugð­ist við myrkra­verk­inu með því að kalla enn á ný eftir hert­ari lögum til að hefta almenna útbreiðslu skot­vopna í land­inu.

Mál­flutn­ingur Cotton um rétt fólks til sjálfs­varnar er keim­líkur þeim sem þrýsti­hóp­ur­inn, sem hann til­heyrir, hélt á lofti eftir að tutt­ugu börn voru skotin til bana árið 2012 í Sandy Hook grunn­skól­anum í Connecticut. Kannski væri ráð að víg­bú­ast í skólum og kirkjum lands­ins til að geta tekið til varna.

Lands­sam­tök skot­vopna­eig­enda í Banda­ríkj­unum hafa hins vegar brugð­ist við ummælum stjórn­ar­manns­ins og sagt að hann tali ekki fyrir hönd sam­tak­anna, heldur beri einn ábyrgð á orðum sínum. Þá hafa ummæli Cotton verið fjar­lægð af áður­nefndum spjall­þræði um byssu­eign í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár